Heimsóknir gesta á Landbúnaðarsafnið eru margar gagnvirkar. Þannig var það með gestinn einn austfirska sem kom á liðnu sumri og færði talið að Ferguson. 
Ég veit um mynd, sagði hann, af mörgum Ferguson-vélum sem komu samtímis með skipi til Reyðarfjarðar um 1950. Ég skal útvega þér hana; merkileg mynd, skal ég segja þér...
Og gesturinn tengdi heimsíðung við son ljósmyndarans, sem nú varðveitir myndasafn föður síns. Sá var áhugaljósmyndari og hét Kristján Ólason (1926-1996). Bjó á Reyðarfirði frá stríðslokum til 1964; var klæðskeri að mennt og starfrækti saumastofu KHB þar.
Sonurinn, Magnús, sendi safninu liðugan tug ljósmynda af þessum merkilega atburði. Magnús var líka svo vinsamlegur að heimila safninu góðfúslega afnot af þeim, sem að sjálfsögðu er þakkað.
Hér fylgir ein mynda Kristjáns klæðskera. Myndirnar koma sér vel í yfirstandandi heimildasöfnuninni vegna 6tugs afmælis Ferguson dráttarvéla á Íslandi á þessu ári.
Að sögn Magnúsar voru dráttarvélarnar allar bensínlausar við komuna til Reyðarfjarðar. Þær munu því hafa verið hnýttar saman í halarófu, víst einar tíu eða fleiri, og dregnar með vörubíl (U-12; tíhjólungs Gemsa....) á athafnasvæði KHB inni á Búðareyri. Eftir myndunum að dæma dró hersingin að sér athygli í bænum.
Inn á Búðareyri hafa nálægir kaupendur sótt hinar nýstárlegu dráttarvélar eftir þeir gerðu upp við kaupfélagið, og eftir að þeir höfðu fyllt tanka dráttarvélanna af bensíni og hlotið frumtilsögn í meðferð vélanna svo umhverfinu stafaði af þeim lágmarkshætta...
Eflaust er það einhver sem enn man komu Ferguson-vélanna mörgu þangað austur?
Ósköp væri nú gaman að heyra frá honum/þeim!