Fyrir skömmu birtum við mynd af óþekktri furðuvél hér á síðunni og báðumst aðstoðar. Tvær tillögur bárust og þakkar heimsíðungur þær; tillögungar voru hreint ekki vissir um að hér færi landbúnaðartæki og voru ekki einir um þá skoðun.
Heimsíðungur gerði sér hins vegar ferð á dögunum til þess að skoða tækið í fylgd með finnandanum og tveimur hundum hans ekki smáum. Eftir að hafa kíkt ögn í bækur, og gengið 5 hringi í kringum tækið þar sem það hvílir sinuhlulið að hluta í horni á mýrarstykki þaðan sem vel sér til Reykjavíkur taldi heimsíðungur sig finna lausnina:
Enn kom Árni G. Eylands með bók sinni Búvélar og ræktun til hjálpar, nú bls. 369. Til öryggis var flett upp í hliðstæðri bók danskri.
Heimsíðungur er næsta viss um að þarna fer kartöflusetjari, hugsanlega einn af þeim fyrstu sem til landsins komu, ef til vill af tegundinni Lesseria.
Setjarinn hefur tvö grafhjól - setur í tvær raðir í einu (sjá mynd sem lögð er með - bendið á hana til stækkunar). Á hvoru grafhjóli eru spaðar sem gera holur. Innan á grafhjólunum eru smáskálar sem nema sáðkartöflurnar upp úr rimlakassa, sem er á milli grafhjólanna. Í hæfilegri stöðu á hringferlinum skreppa kartöflurnar niður úr grafhjólunum og ofan í holurnar áðurnefndu.
Á eftir ganga tveir diskar sem moka jarðveginum yfir kartöflurnar í holunum. Einfalt, ekki satt? Líklega hefur aðeins verið hægt að setja óspíraðar kartöflur með setjaranum - hann virðist hafa þurft að leika kartöflurnar allhart.
Setjarinn hefur líklega verið vélardreginn þótt beislið virðist líka hafa hentað hemlum og hestadrætti.
Enn mátti sjá að tækið hefur verið Caterpillargult að lit. Ástand þess er furðugott enn.
Hundarnir áðurnefndu höfðu engan áhuga á setjaranum; sáu ekki einu sinni ástæðu til þess að merkja sér hann. Þeir höfðu miklu meiri áhuga á að snuðra í nálægum skurðbökkum og að kvelja hvorn annan.
Nú er bara spurt hvort einhver kannast við kartöflusetjara af þessari gerð?