Senda á Facebook
1. apríl 2008

Ný frímerki - úr tæknisögu sveitanna!

Þann 27. mars sl. komu út frímerki sem minna á tæknisögu sveitanna: Þau sýna Ólafsdalsplóg, Þúfnabanann, Jarðýtu IHC TD6 og gráan Ferguson með vagnsláttuvél. Frímerkin hannaði Hlynur Óskarsson en Landbúnaðarsafn veitti nokkur ráð við gerð þeirra. Nánar má um frímerkin fræðast á síðunni http://www.postur.is/desktopdefault.aspx/tabid-29/26_read-450/

en þar er m.a. að finna þessa skýringu á fyrirmyndum frímerkjanna.

 

"IHC jarðýtan. International Harvester jarðýtan frá 1943 var fyrsta beltavélin með ýtutönn sem reynd var við jarðvinnslu hérlendis. Síðan hafa ekki mörg tún verið ræktuð án þess að jarðýta kæmi þar við sögu. Hún auðveldaði einnig samgöngubætur með vegagerð. Tala má um byltingu í túnrækt og vegagerð með tilkomu jarðýtunnar. Ferguson dráttarvélin. Snemma árs 1949 kom fyrsta Ferguson dráttarvélin til Íslands. Hún var af gerðinni TF 20 með 24 hö. bensínvél. Með henni mátti fá margvísleg vinnutæki, t.d. sláttuvél, plóg, herfi o.s.frv. Þessi dráttarvélagerð er líklega sú sem mest hefur selst hérlendis. Plógur Torfa í Ólafsdal. Árið 1880 tók fyrsti búnaðarskóli á Íslandi til starfa. Þetta var einkaskóli Torfa Bjarnasonar í Ólafdal við Gilsfjörð. Torfi kynnti nemendum sínum m.a. ræktunarverkfæri sem áður voru lítt þekkt, m.a. skoskan plóg. Torfi breytti plóginum þannig að hann hentaði betur íslenskum jarðvegi og hestum. Áhrifum skólans má þakka mikið af því sem ávannst um jarðyrkju á Íslandi á fyrstu tugum 20. aldar. Þúfnabaninn var ætlaður til jarðvinnslu eins og nafnið bendir til. Hann er einn af sex slíkum vélum sem fluttar voru til landsins á árunum 1921-1927. Búvélaverksmiðjur Heinrich Lanz í Mannheim smíðuðu þúfnabanann (Landbaumotor Lanz). Hann vóg 6,6 tonn, knúinn 4 strokka bensínvél sem talin var 80 hö. Hérlendis voru þúfnabanarnir einkum notaðir við túnasléttun". 

 

Landbúnaðarsafn er afar þakklátt póstyfirvöldum  fyrir þetta framtak. Frímerkin eru falleg og vekja athygli á merkri sögu.