Senda á Facebook
2. mars 2008

Leyndarmálið um moksturstækin...

Sumar nýungar lauma sér inn í samtíðina án þess margir taki eftir – stundum enginn: allt í einu eru þær komnar, jafnvel orðnar almannaeign. Eftir standa söguglaðir menn án hugmyndar um tímasetningu nýbreytninnar.

 

Þannig er það með fylgifisk nær allra dráttarvéla í dag – moksturstækin. Heimsíðungur hefur ekki ríngustu hugmynd um nær þau kómu, og nokkur leit hefur lítinn árangur borið.

 

Nú eru moksturstæki (loader) ekki ómerkilegasta áhaldið í tækjaflóru landbúnaðarins sem út hingað hefur borist. Í morgunsól unglingsára munum vér svitadropa og lúa í rýrum vöðvum undan því að moka heyi til og frá, skít upp í kerru eða skítadreifara frá Makk-Kormáki, að ekki sé nú minnst á möl í nýja fjósið eða hlöðuna.

 

Þú getur ekki ímyndað þér hverju moksturstækin breyttu: Það lá við að eftir komu þeirra tækju menn að moka skít, mold og heyi sér til gamans, jafnvel á sunnudögum...

 

En hvaða ár komu fyrstu moksturstækin á dráttarvélar vorar?

 

Í safninu á Hvanneyri eru tæki á Hanomag R 12 frá því laust fyrir miðjan sjötta áratuginn og önnur á Ferguson frá sama tíma (sjá mynd sem hér fylgir). Myndir á safnið af Oliver-dráttarvél með burðug tæki – dráttarvél sem er nokkru eldri.

 

Einn fjölfróðasti heimildarmaður safnsins hefur bent heimsíðungi á að moksturstækja sé hvergi getið í þeirri merku bók Árna G. Eylands: Búvélar og ræktun. Hún var gefin út árið 1950. Um þær mundir mun þó fyrirtækið Orka hf hafa flutt inn tugi tækja af gerðinni Ottawa, að sögn þessa heimildarmanns.

 

Hér er því verk að vinna. Hver getur bjargað oss um ábendingar, fróðleik eða staðreyndir máls? Vinsamlegast hafið samband...

 

Og síðan má öðru við bæta:

 

Það voru ekki allir sem biðu eftir því að kaupfélagið útvegaði þeim moksturstæki, nú eða hann Árni í Glóbus: Hann Guðbrandur Þórmundsson í Nýjabæ í Bæjarsveit fékk sér bara, að hætti Georgs gírlausa Volts Disneis,  dálítið af járni af hentugum gerðum og lögun og smíðaði sín eigin tæki. Brúkaði lengi. Einstaklega hagur maður, Guðbrandur, og með bestu bændum er fundust.

 

Veist þú um fleiri hérlenda sem hafa smíðað moksturstæki á dráttarvél?  Sé svo, lát heyra!

 

Og mundi þá nóg mokað í dag .........

 

bjarnig@lbhi.is        GSM 894 6368