Senda á Facebook
20. nóvember 2007

Horfin starfsstétt - og gleymd?

Í umróti 20. aldar varð til og hvarf stétt manna sem þjónaði íslenskri nautgriparækt. Þessi stétt átti sinn stóra þátt í því að í dag mjólkar meðalkýrin á ári jafnmikið og að minnsta kosti þrjár gerðu fyrir einni öld síðan.  Þessari stétt tilheyrðu mjólkurmælingamennirnir – í sumum sveitum einfaldlega kallaðir “mælar”kontrolør, upp á dönsku, en þangað var fyrirmynd starfans einkum sótt: Þannig var t.d. Helgi Guðmundsson á Brekku á Ingjaldssandi, sem þessu starfi gegndi á stóru svæði, gjarnan kallaður Helgi mælir. Blómaskeið þessarar starfsstéttar stóð laust fyrir miðja síðustu öld.

 

 

 

 

Hlutverk Mælisins var að fara á milli bæja, mæla og skrá nyt kúa, og annað það sem varðaði starf nautgriparæktarfélaganna. Verkið var grundvöllur kynbótastarfs og framfara í nautgriparækt – hluti af samræmdu félagskerfi bænda sem nokkurs stuðnings naut af opinberu fé, enda talið mikilvægur liður í því að tryggja matbjörg þjóðarinnar og framleiðslu mjólkurafurða á vænlega markaði erlendis.

 

Heimsíðungur vill vekja athygli á þessari horfnu – og líklega af flestum gleymdu – starfsstétt. Mjólkureftirlitsmenn þeirrar tíðar fóru ýmist gangandi eða ríðandi á milli bæja, þeir síðustu líklega á jeppum. Þeir höfðu með sér farangur, m.a. dálítinn kassa eða tösku sem í voru einföld tæki til fitumælinga mjólkur og vigtunar auk skráningargagna. Þeir fylgdust með mjöltum og litu eftir að allt væri skráð í samræmi við reglur nautgriparæktarfélaganna.

 

Nokkur gögn eru til sem segja sögu fyrri mjólkureftirlitsmannanna, en safnið vantar meira:

 

Veit einhver lesenda um heilstætt sett útbúnaðar mjólkureftirlitsmanns frá því um miðja síðustu öld?

 

Eða hluta þess?

 

Getur lesandi  bent okkur á öldung sem þessu starfi sinnti og er enn til frásagnar um starf sitt?

 

Veit einhver um myndir sem þessu starfi tengjast?

 

Vinsamlegast hafið þá samband við heimsíðung, Bjarna Guðmundsson, s. 433 5062 eða GSM 894 6368, eða bjarnig@lbhi.is