Senda á Facebook
1. nóvember 2007

Kartöflukosningu er lokið

Kartöflukosningu er lokið og þjóðin hefur greint frá hegðan sinni hvað snertir ræktun jarðepla. Niðurstöðurnar eru einkar athyglisverðar. Því miður benda þær til þess að kartöflur njóti ekki lengur stuðnings meirihluta þjóðarinnar. Heimsíðungur telur það alvarlegt merki um hnignandi sjálfsbjargarvitund eyþjóðar. Nú getur hún ekki lengur kennt um kulda og kröm líkt og á tímum sr. Bjarnar frumkvöðulsins í Sauðlauksdal fyrir meira en tveimur öldum. Loftstlag fer hlýnandi og engin lóð er svo smá að þar megi ekki pota niður nokkrum kartöflum, þótt ekki sé jafn stórt gert og í alþekktum kartöflusöng Árna Johnsen - en niðurstöður kartöflukosningarinnar urðu þessar:

Rækta kartöflur og nýt þess                          27%

Rækta kartöflur                                                 11%

 

Rækta ekki kartöflur                                        46%

Rækta ekki kartöflur og sakna þess ekki   16%

 

Á Alþjóðaári kartöflunnar 2008 er tækifæri til að gera betur!