Þessa dagana kíkja sumargestir við í safninu. Ýmsir þeirra hafa sögur að segja. Heimsíðungur hefur það fyrir vana að skrá sumar þeirra. - Búskap, vélum og bútækni er greinilega bundin ríkulega flóra sagna sem full ástæða er að halda til haga sem hluta af þjóðfélagssögu 20. aldar.
Sem dæmi skulu hér tvær látnar fylgja, ferskar báðar - voru sagðar í síðustu viku, örskömmu eftir að óheppilegur snúningur jarðar olli því að opið andstæðingamarkið varð fyrir bolta nafna heimsíðungs af Skaga svo sem frægt hefur orðið:
Líttu niður fyrir þig:
Safngestur sem bernskur hafði verið í sveit á bæ fyrir norðan kvaðst þar hafa kynnst Allis Chalmers-dráttarvél. Sú var sameign húsbónda hans og annars bónda er bjó allfjarri. Þeir bændurnir skiptu notkun dráttarvélarinnar með sér þannig að hún var viku á hvorum stað.
Á laugardagskvöldi, kl. 8, minnir mig hann hafa sagt, var heimildarmaður minn sendur með dráttarvélina af stað til sameignarbóndans. Þangað kominn mun piltur hafa velt fyrir sér hvernig hann færi til baka: „Líttu niður fyrir þig“ var þá sagt og átt við að fætur hans væru til þess fallnir. Og piltur arkaði af stað og kvaðst hafa verið kominn heim um fimmleytið um morguninn.
Börnin til friðs...
Maður um á fimmtugsaldri kom í safnið og skoðaði m.a. Deutz safnsins, sem kominn er frá Efri Brunná í Saurbæ. Slík dráttarvél hafði verið notuð heima hjá honum.
Fjölskyldan var barnmörg og til þess að hafa stjórn á liðinu hafði faðir þeirra útbúið kassa aftan á vélina þar sem hann gat komið fyrir tveimur brasthörðum sonum sínum.
Þar voru þeir til friðs á meðan pabbi þeirra sló með dráttarvélinni ...
Ef til vill var það hliðstæð lausn og bóndakona úr Dölum greip til þegar þau hjónin keyptu Zetor, sem var eina vélin með nægilega stóru húsi að þeirra mati svo í því mætti líka koma fyrir barnabílstól. Þar gat húsfreyja haft barn þeirra með sér á öruggum stað við heysnúning og önnur störf.