1. júní 2007
Smali - viðbrögð!
Viðbrögð við fyrirspurn hér næst-næstneðar á síðunni létu ekki á sér standa - að sönnu ekki mörg en þeim mun skýrari hvert:
Nokkrir könnuðust við að sláttuvélar-sláin sú arna sem margir nefna hlaupastelpu hafi verið nefnd smali - að öllum líkindum með skírskotun til smalatrés á rokk er breytir upp-niður hreyfingu fótar spunamanns (rokkarans - eins og einn gestur Ullarselsins/Búvélasafnsins kallaði starfsmanninn) í snúning rokkhjólsins: Á sláttuvélinni gerist bara hið gagnstæða: þar er hringhreyfingu öxuls úr gírkassa breytt í fram-og-tilbaka - hreyfingu ljásins í greiðunni.
Tilfinning heimsíðungs, byggð á þessari litlu könnun, er samt sú að heitið smali hafi ekki verið algengt hvað sláttuvélarnar snertir - en hlaupastelpa þeim mun algengara.
Hins vegar sýna bæði nöfnin enn eitt dæmið um það hvernig tungumálið getur myndað þráð í gegnum tækniþróunina og dregið athyglina að frumþáttum hennar: Að fátt er í raun nýtt undir sólinni, aðeins lítið eitt breytt og lagað að nýjum aðstæðum.
Heimsíðungur óskar eftir fleiri dæmum um hlaupastelpu og smala, sendið póst á bjarnig@lbhi.is