Senda á Facebook
30. maí 2007

Hérna kemur myndin sem lofað var ...

Heimsíðungur ræður sér vart fyrir kæti því nú tókst knattleiksmönnum hans gulum og glöðum að knýja fram jafntefli svo stefnan er tekin hratt upp Landsbankadeildarstigatöfluna.

 

Svo lofaði hann með næst síðasta pistli hér á síðunni mynd, sem hér kemur. Það er mynd af stjórn (aðal- og varamenn) Landbúnaðarsafns Íslands og starfsmanni - glaðbeitt er hún og til alls líkleg, þ.e. stjórnin:

 Við sjáum frá vinstri talið:

 

Ólaf Ólafsson, Lilju Árnadóttur, Elísabetu Rán Andrésdóttur, Tjörva Bjarnason, Ágúst Georgsson, Torfa Jóhannesson, Harald Benediktsson, Bjarna Guðmundsson og Ágúst Sigurðsson.  Fjarstödd var Auður Sveinsdóttir auk Sveinbjarnar Eyjólfssonar sem þurfti að hverfa af fundi. 

 

Myndin er tekin við lok fyrsta stjórnarfundar, á Hvanneyri þann 16. maí sl. (ljósm. Áskell Þórisson).