13. apríl 2007
Fyrsta stjórn Landbúnaðarsafns Íslands ses
Nú hafa allir stofn- og stjórnaraðilar Landbúnaðarsafns Íslands á Hvanneyri ákveðið tilnefningu fulltrúa sinna. Eftirtaldir munu skipa fyrstu stjórn sjálfseignarstofnunarinnar:
Fyrir Landbúnaðarháskóla Íslands:
Aðalmaður: Ágúst Sigurðsson rektor, Hvanneyri.
Varamaður: Auður Sveinsdóttir dósent, Hvanneyri.
Fyrir Sveitarfélagið Borgarbyggð:
Aðalmaður: Sveinbjörn Eyjólfsson sveitarstjórnarmaður og framkvstj., Hvannatúni.
Varamaður: Torfi Jóhannesson, sveitarstjórnarmaður og ráðunautur, Hvanneyri.
Fyrir Bændasamtök Íslands:
Aðalmaður: Haraldur Benediktsson, bóndi og formaður BÍ, Vestri-Reyni.
Varamaður: Tjörvi Bjarnason, sviðsstjóri BÍ, Reykjavík.
Fyrir Þjóðminjavörð:
Aðalmaður: Lilja Árnadóttir, fagstjóri munasafns ÞÍ, Reykjavík.
Varamaður: Ágúst Georgsson, fagstjóri þjóðháttasafns ÞÍ, Reykjavík.
Fyrir Landbúnaðarráðherra:
Aðalmaður: Ólafur Ólafsson stjórnarformaður Samskipa, Kópavogi.
Varamaður: Elísabet Rán Andrésdóttir, lögfræðingur og ritari Landbúnaðarnefndar. Alþingis, Reykjavík.
Hin nýskipaða stjórn Landbúnaðarsafnsins mun fljótlega koma saman til fyrsta fundar. Verður hann raunar framhald stofnfundar sem haldinn var 14. febrúar sl.
ES: Nú fer að fækka pistlum á þessari heimasíðu því hún verður brátt leyst af hólmi af heimasíðu hins nýja safns er verður finnanleg eftir slóðinni www.landbunadarsafn.is