26. janúar 2007
Zetorsala - Viðskiptabann á Pólverja?
Heimsíðungur vill vekja athygli á greininni . http://skessuhorn.is/Default.asp?sid_id=24845&tId=99&Tre_Rod=001|002|&fre_id=46453&meira=1 þar sem segir frá áhuga Pólverja á því að kaupa hérlendis gamlar Zetor-dráttarvélar til uppgerðar og notkunar í hinu frjósama heimalandi þeirra.
Rifjast þá upp fyrir heimsíðungi ráðstöfun frá stjórnartíma Ingólfs á Hellu sem landbúnaðarráðherra. Þá (laust fyrir 1960) voru bændur sem óðast að kaupa vélar til þess að mæta þörf nýrra tíma. Ýmsum stóð ógn af verði þeirra; gjaldeyrir var takmarkaður og sumir áttu einfaldlega ekki fjármuni til þess að kaupa gljándi gripi úr kassanum (því þá komu margar vélar í kössum).
Var þá gripið til þess ráðs að falast eftir notuðum dráttarvélum erlendis. Meðal annars voru fjölmargir Nallar keyptir frá Englandi og, að heimsíðungur best veit, líka Fergusonar. Á einhverjum stað var gluðað yfir þessar vélar sótthreinsunarlegi og upp á þær hresst með ýmsu móti (einhverjir staðhæfðu þó að stöku moldarkögglar af ökrum Bretadrottningar hefðu fylgt þessum dráttarvélum en engum skaða olli það að því heyrst hefur).
Margar þessara véla reyndust kaupendum sínum mikill happafengur: Má heimsíðungur um það vitna því á fæðingabæ hans kom IHC B250 vorið 1962 enskur að ætt og mikið notaður. Gripur þessi þjónaði búinu þar í fjölda ára feilpústslaust og endaði sína daga sem léttitæki fiskverkunarfyrirtækis á Eyrinni skömmu fyrir síðustu aldamót – þá líklega langt genginn í fimmtugt.
Saga þessara erlendu notuðu dráttarvéla er enn óskráð, en svona gengur nú sagan í hringi. Hver veit nema að nokkrum árum liðnum munum við aftur taka að kaupa af Pólverjum notuð landbúnaðartæki þegar þeir hafa farið sinn hring í efnahags-galhoppi landbúnaðarframleiðslunnar en við í gegnum kreppuna?
Pólverjar eru vel komnir að hinum lúnu Zetorum okkar sem víða eru hófleg sveitarprýði – hins vegar þykir heimsíðungi verra að þeir skyldu hafa okkur í handbolta í gær (25.1.).
Lendi Pólverjar ofar okkur í lokaröð HM leggur heimsíðungur því til að sett verði Zetor/Ursus viðskiptabann á þá – að minnsta kosti fram á góu (því þá verða flestir búnir að gleyma HM).