Senda á Facebook
22. maí 2006

Einsögur um bútækni

Enn vill Búvélasafnið auka framlag sitt til menningarsögu íslensku þjóðarinnar; heimsíðungur er að vísu hundfúll yfir gengi Skagamanna í deildinni, sem virðast heillum horfnir, en leggst þó ekki í þunglyndi af þeim sökum að svo stöddu.  Hér uppi og til vinstri á heimasíðunni sérðu nýjan efnisflokk sem heitir Einsögur um bútækni. Dreptu fingri á hann með músinni og þá koma fyrstu sögurnar sem og skýring á eðli þeirra og notagildi.    

Heimsíðungur þiggur mjög gjarnan einsögur úr þróunarsögu véla og verktækni í íslenskum sveitum, sem og ábendingar um þær.