3. mars 2006
Landbúnaðarsafn Íslands
Á vegum Landbúnaðarháskólans er nú unnið að því að stofna Landbúnaðarsafn Íslands, m.a. á grunni Búvélasafnsins sem til hefur verið á Hvanneyri að segja má allt frá árinu 1940. Þann 27. febrúar sl. var haldinn fundur í LbhÍ þar sem staða málsins var kynnt og hugmyndir ræddar. Safninu er sérstaklega ætlað að sinna tímabilinu frá fyrstu árum tæknivæðingar landbúnaðarins með varðveislu, rannsókna og kynningarstarfi. Stefnt er að því að nýta Gamla fjósið á Hvanneyri, sem er sögulega merk bygging, undir starfsemi safnsins, að því marki sem starf þess verður innanhúss. Leitað verður eftir samstarfi við hliðstæðar stofnanir, m.a. með varðveislustarf, sýningar, verkaskiptingu, rannsóknir, þjónustu og fleira í huga.
Stefnt er að því að safnið verði sjálfseignarstofnun og eru nú í gangi viðræður við aðila sem lýst hafa áhuga á að vera með í starfinu. Bjarni Guðmundsson, sem er ábyrgðarmaður Búvélasafnsins á Hvanneyri, hefur einnig verið ábyrgðarmaður undirbúningsstarfsins til þessa.