16. nóvember 2004
Volvo T22 bætist í Búvélasafnið
Nú í nóvember bættist Búvélasafninu Volvo T22 dráttarvél árgerð 1949. Vélin er vestan úr Valþjófsdal, gefin af þeim Guðmundi Steinari Gunnarssyni og bróðursonum hans, þeim Þorfinni og Þresti Þorvaldssonum, frá Þorfinnsstöðum. Vélin er í mjög góðu standi og henni fylgir sláttuvél frá Westeråsmaskiner. Guðmundur hefur skráð sögu vélarinnar sem er hin merkasta.
Á sinni tíð máttu fyrstu eigendurnir, Björgmundur á Kirkjubóli og Gunnar á Þorfinnsstöðum, brjótast með vélina yfir óvegi um Ófæru, enda þetta fyrsta vél sem í Dalinn kom. Þar gengdi hún ýmsum hlutverkum um árabil en naut góðs atlætis hjá Þorvaldi, syni Gunnars, á Þorfinnsstöðum síðari árin en síðan Guðmundar bróður hans.
Volvóinn er safninu fengur því á sinni tíð var sams konar vél á Hvanneyri, sem margir hafa spurt eftir. Fáar vélar þessarar gerðar komu til landsins, líklega aðeins um tugur, en þær reyndust hins vegar vel. Búvélasafnið er mjög þakklátt Valþjófsdælingum fyrir þessa gjöf.