8. júlí 2012
Hálft 3. hundrað manns á Safnadegi á Hvanneyri
Um 240-250 manns kíktu við á Safnadegi á Hvanneyri í dag. Landbúnaðarsafnið var mikið skoðað og tveir heiðursbændur komu færandi hendi með gagnmerka gripi í þeim - með vilyrði um fleiri.

Farin var fjölmenn mjólkursagnaganga um staði og minjar. Landskeppnin Ull í fat fór fram á vegum Ullarselsins þar sem þrjú lið kepptu. Ullarselið mun væntanlega greina frá úrslitum keppninnar sem varð afar jöfn og spennandi.
Þá var Flóarmarkaður í Halldórsfjósi og Kvenfélagið 19. júní bauð myndarlegt vöfflukaffi í Skemmunni.
Þá heiðraði sérlegur fulltrúi Hrútavinafélagsins Örvars á Suðurlandi og markaðsstjóri Vestfirska forlagsins á Brekku hátíðarsvæðið með nærveru sinni, og boðaði opinbera heimsókn félagsmanna þess að Hvanneyri er hallaði nær göngum og réttum haustsins.
Síðast en ekki síst komu nokkrir félagar Fornbílaklúbbs Íslands í heimsókn á glæsifákum sínum, sá elsti var Ford A 1930. Vöktu þeir mikla athygli.
Í heild tókst Safnadagurinn á Hvanneyri afskaplega vel. Logn, hiti, maður-er-manns-gaman-stemning og velþegin súld undir dagslokin einkenndu samkomuna.
Gestum er þökkuð koman að Hvanneyri.