Senda á Facebook
28. janúar 2004

Um ritvillur - og aðrar villur

Það er heimsíðungi oft umþeinkíngarefni hvort einhver "þarna úti" lesi það sem á þessari síðu stendur. Staðfestingu þess fær hann af og til þegar honum er bent á ritvillur sem þar laumast stundum með. Þetta er heimsíðungi mikil huggun, auk þess sem hann, eins og Hannes Hólmsteinn, er afar þakklátur fyrir sjálfboðastarf vandalausra við prófarkalestur skrifa sinna....

Heimsíðungur hóf nfl. smáklausu nýlega um STÖD-rafgirðingar hér á síðunni með orðunum:  "Nú eru ragfirðingar vinsælastar girðinga..."  Glöggur lesandi innti eftir því hvar ragfirðinga væri að finna, og dugði þá ekki landfræðikunnátta heimsíðungs lengur. - En, prentvillan hefur verið lagfærð, og það sem jafn mikils virði er: Búvélasafnið hefur fengið STÖD-rafstöðvarkassa frá miðri síðustu öld en vantar enn tilheyrandi búnað á staurana.

 

Og úr því talað er um ritvillu má heimsíðungur etv. rifja upp skylt efni úr bernsku hans á sjötta áratug síðustu aldar: Á glugga Sigmundarbúðar heima á Þingeyri við Dýrafjörð hafði verið hengd upp auglýsing er hófst svo: Ákveðið hefur verið að kvenfélagskonum skuli haldið saumanámskeið .... Þetta hefði nú svo sem verið allt í góðu lagi ef ungir menn, sem um búðina áttu leið, hefðu ekki numið brott síðasta orðið .....Nokkur glaðværð gerði um sig í þorpinu stundarkorn, en þó dró ekki til neinna framkvæmda í það skiptið.

 

Það er nefnilega tilfellið að orðinu má ekki halla.