Senda á Facebook
15. janúar 2004

Nýtt ár - merkilegt ár!

Þá er hafið nýtt ár - merkilegt ár!

Landbúnaðurinn og tækni hans hafa breyst hratt síðustu áratugina og til þess að rifja upp leiðarsteina sem tengjast áratugunum getum við að gamni okkar rifjað upp nokkra áfanga:

60 ár síðan Ísland varð lýðveldi og fyrstu gúmmíhjóladráttarvélarnar komu til landsins

50 ár síðan hjólmúgavélin kom til Íslands

40 ár síðan fyrsta haugsugan kom til landsins

30 ár síðan flatgryfjumenningin þótti hvað mest spennandi

20 ár síðan rúllupokunaraðferðin átti sitt blómaskeið

10 ár síðan rúlluvæðing hafði náð til meira en helmings heyafla landsmanna...

 

 

Vitanlega eru ekki öll ártölin nákvæm en samt sýna þau hinn þunga straum tímans; allt hefur verið á hverfanda hveli. Það sem mótaði þína sveit er því sjálfsagt allt annað en það sem mótaði mína. Báðir kunnum við að vilja eiga einhverjar minjar um þær, geta gengið á vit þeirra og rifjað upp það sem var.

 

Það er eitt af hlutverkum Búvélasafnsins á Hvanneyri; líka það að reyna að meta hvort og í hvaða mæli okkur hafi skilað fram - þótt við göngum að vísu alltaf út frá því að svo hafi gerst!