Senda á Facebook
14. desember 2003

Góð bók

Heimsíðungur vill vekja athygli ykkar á mjög nýlegri bók - The World Encyclopedia of Tractors - eftir John Carroll. Bókin var gefin út 1999 og aftur 2002, sjá www.lorenzbooks.com  Bókin er 256 bls. að stærð. Ríflega helmingur efnis hennar er myndefni, mjög vandað. Þannig er bókin vel læsileg öllum.

Fjölfræðibók þessi er kaflaskipt. Í fyrri hluta hennar er samþjöppuð þróunarsaga dráttarvéla og vélvæðingar í landbúnaði. Þar er einnig sagt frá mikilvægum brautryðjendum í hópi dráttarvélahönnuða og -smiða og fjölmörgu öðru er snertir bútæknisögu.

    Seinni hluti bókarinnar, ríflega 150 bls., geymir frásagnir í máli og myndum um fjölmargar tegundir dráttarvéla enda heitir kaflinn A-Z of Tractors.

    Bókin er hin eigulegasta, dálítið þung kannske, í þess orðs eiginlegu merkingu, því pappírinn er þungur myndapappír! Þar á móti kemur að myndirnar, sem eru stórgóðar, njóta sín afar vel.

    Þessi bók á erindi við áhugamenn um forndráttarvélar. Bókin fæst nú m.a. í Pennanum/Eymundsson, í Kringlunni í Reykjavík og kostar þar ríflega hálft fjórða þúsund krónur. Hagstætt verð á eigulegri bók.