Senda á Facebook
8. desember 2003

Jólaföstugestir

Lífleg gestakoma hefur verið í Búvélasafninu nú í haust. Stærstu hóparnir eru skólahópar af höfuðborgarsvæðinu og starfsmannahópar sem komið hafa að Hvanneyri til þess að reyna sig í sveita-,,fitness" á vegum Guðmundar ráðsmanns. Nú í dag, í annarri viku aðventu,  t.d. kom í safnið skólahópur úr Borgarnesi til þess að kynna sér fornar landbúnaðarvélar og þætti búnaðarsögunnar en líta um leið á gæðahandverk og tóvinnutækni í Ullarselinu. Gestafjöldi Búvélasafnsins í ár verður sennilega meiri en var á síðasta ári.