24. nóvember 2003
STÖD - fyrstu rafgirðingarnar
Nú eru rafgirðingar vinsælastar girðinga, enda ódýrari en að aðrar og liprar í meðförum . Búvélasafnið hefur um hríð leitað að elstu gerðum þessara girðinga, en þær komu til skömmu fyrir miðja síðustu öld. Á bls. 38 í bókinni Búvélar og ræktun er mynd af einni slíkri (39. mynd). Búvélasafninu vantar eina slíka með tilheyrandi búnaði. Veist þú um svona rafgirðingarstöð? Búvélasafninu væri fengur að einni slíkri - og einangrunarkúlunum sem báru uppi rafstrenginn.
.
Þessar stöðvar voru danskar að gerð. Straumgjafinn var venjulega rafgeymir. Snorri bóndi Jóhannesson á Augastöðum í Hálsasveit færði Búvélasafninu svona stöð á dögunum, en hún er sennilega ekki af elstu gerðinni, sem var fremur klunnaleg, úr steyptu járni, og hin sterklegasta. Þannig hefur hluta sögunnar verið bjargað - fyrir hugulsemi Snorra bónda.