2. júlí 2010
Safnadagurinn á Hvanneyri sunnudaginn 11. júlí
Sunnudaginn 11. júlí nk. er Íslenski safnadagurinn. Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri tekur að venju þátt í honum.
Leiðsögn verður veitt
um safnið og þá mörgu gripi sem þar eru til sýnis.
Sérstaklega verður athygli vakin á Nöllum og öðrum vélum og tækjum í safninu frá International Harvester (IHC) en þau hafa komið við sögu á velflestum bæjum á Íslandi.
Kl. 14 verður stutt söguganga um Gamla staðinn á Hvanneyri og næsta nágrenni hans. Litið verður til Hvanneyrarengja, umhverfis þar og gróðurs, svo og nýtingar engjanna fyrr á tímum. Bjarni Guðmundsson gengur með gestum.
Ullarselið verður á sínum stað.
Skemmukaffið verður opið og þar má fá þjóðlegt sveitakaffi – Engjakaffi – hjá henni Soffíu Reynisdóttur. Það er einmitt nýbúið að pússa upp gömlu Skemmuna á Hvanneyri, elsta hús staðarins, sem safnaðarheimili og notalegan samverustað.
Landbúnaðarsafnið er opið kl. 12-17 og er aðgangur að því ókeypis þennan dag.
Gamli mjólkurbrúsinn tekur hins vegar við frjálsum framlögum gesta til safnstarfsins.