Senda á Facebook
29. september 2003

Viðurkenning Safnaráðs

Á fundi Safnaráðs þann 18. september sl. var lokið umræðu um starfsemi Búvélasafnsins á Hvanneyri. Í bréfi Safnaráðs dags. 24. sept. sl. segir svo: "Safnaráð hefur metið starfsemi safnsins út frá upplýsingum frá ábyrgðarmanni þess og greinargerð frá safninu. Mat þetta hefur sýnt fram á að safnið uppfyllir 4. grein safnalaga og skal Búvélasafnið því réttilega teljast safn lögum samkvæmt."

Ákvörðun Safnaráðs er Búvélasafninu mikilvæg og leggur því jafnframt auknar skyldur á herðar sem safnið mun leggja metnað sinn í að uppfylla.