Heim » Miðlun » Fréttir

Fréttir og viðburðir

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons

Við þurfum ekkert astraltertugubb eins og Stuðmenn því við tókum myndir!👽 Nokkrir úr Fergusonfélaginu komu í dag og þrifu, færðu gripi og komu fyrir dráttarvél á hringtorginu hér á Hvanneyri💪🏻 Þeim fellur ekki verk úr hendi frekar en fyrri daginn og svo er meira sem við erum að bralla saman þessa daga sem kemur í ljós næstu vikur. En endilega takið frá 20 júní til að byrja með🗓️ Fergusonfélagið ... Sjá meiraSjá minna

Við þurfum ekkert astraltertugubb eins og Stuðmenn því við tókum myndir!👽 Nokkrir úr Fergusonfélaginu komu í dag og þrifu, færðu gripi og komu fyrir dráttarvél á hringtorginu hér á Hvanneyri💪🏻 Þeim fellur ekki verk úr hendi frekar en fyrri daginn og svo er meira sem við erum að bralla saman þessa daga sem kemur í ljós næstu vikur. En endilega takið frá 20 júní til að byrja með🗓️ FergusonfélagiðImage attachmentImage attachment

1 CommentSkrá aths

fallegur traktor er augnayndi

Það er komið sumar! Sumaropnun hefur nú tekið við hjá okkur á Landbúnaðarsafninu☀️ Nú er opið alla daga á milli kl. 11-17, verið velkomin á Hvanneyri ☺️

English translation
Summer is here! Our summer opening hours have now begun at the Agricultural Museum of Iceland ☀️
We are now open every day from 11:00 AM to 5:00 PM. Welcome to Hvanneyri ☺️

Ullarselið
... Sjá meiraSjá minna

Það er komið sumar! Sumaropnun hefur nú tekið við hjá okkur á Landbúnaðarsafninu☀️ Nú er opið alla daga á milli kl. 11-17, verið velkomin á Hvanneyri ☺️English translation
Summer is here! Our summer opening hours have now begun at the Agricultural Museum of Iceland ☀️
We are now open every day from 11:00 AM to 5:00 PM. Welcome to Hvanneyri ☺️Ullarselið

0 CommentsSkrá aths

Safnadagurinn á mánudaginn og frítt inn hjá okkur þann daginn🥳Alþjóðlegi safnadagurinn er 18. maí, yfirskrift dagsins í ár er: Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi.

Sem vettvangur fræðslu og þekkingar gegna söfn mikilvægu hlutverki í að efla friðsamleg samskipti og gagnkvæma virðingu. Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum í maí 2026 er ykkur boðið að taka þátt í að varpa ljósi á yfirskrift ársins Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi. Yfirskriftin mun jafnframt setja sinn svip á hátíðarhöld í tilefni af 80 ára afmæli ICOM á árinu.

Söfn eru opin rými sem njóta trausts almennings, þar sem gestir eiga þess kost að kynnast sögum, gripum og hvert öðru. Á tímum sundrungar, skautunar og ójafns aðgengis að þekkingu og menningu gegna söfn lykilhlutverki í að endurbyggja tengsl þvert á kynslóðir, samfélagshópa og landamæri. Þannig stuðla þau að samtali, skilningi, þátttöku og friði innan samfélaga og á heimsvísu.

Yfirskriftin Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi undirstrikar möguleika safna til að brúa bilið milli ólíkra menningarheima, samfélagshópa og landssvæða. Markmið safna er ekki að setja alla undir sama hatt heldur skapa rými þar sem skilningur og virðing eru höfð í hávegum. Með því að varðveita menningararf og minni, efla fræðslu og ígrundun, auk þess að bjóða upp á opið og aðgengilegt rými þar sem ólíkar raddir fá að heyrast, stuðla söfn að fjölbreytileika og sjálfbærni.

Við hvetjum öll þau sem tilheyra hinu alþjóðlega safnasamfélagi til að taka þátt í Safnadeginum 2026 og vinna með yfirskriftina á þann hátt að hún höfði til nærsamfélagsins. Svo sem með verkefnum sem byggja á þátttöku, samstarfi ólíkra aðila og auknu aðgengi, í því skyni að stuðla að samkennd og trausti í samfélaginu.

Við hlökkum til að fagna Alþjóðlega safnadeginum með ykkur og ykkar söfnum.
... Sjá meiraSjá minna

Safnadagurinn á mánudaginn og frítt inn hjá okkur þann daginn🥳

0 CommentsSkrá aths

Erum við að leita að þér?👇🏻Ullarselið og Landbúnaðarsafn Íslands auglýsa eftir starfskrafti, sjá nánar hér að neðan ⬇️ ... Sjá meiraSjá minna

Erum við að leita að þér?👇🏻

0 CommentsSkrá aths

👨‍🌾 Sögustund um Svein búfræðing fór fram í gær þar sem Bjarni Guðmundsson fór yfir ævi og störf hans. Í lokin röltu gestir með Bjarna út í Frúargarð þar sem lagður var blómvöndur við styttu Sveins. Við þökkum þeim sem komu og líka öllum þeim sem hafa sótt viðburðina hjá okkur í vetur!🙏🏻
Nú er maí handan við hornið og byrjar sumaropnun þann 15anda🗓️ Svo í sumar er ýmislegt á teikniborðinu en meir um það síðar! Við sendum svo sauðfjárbændum sérstakar kveðjur í þeim skemmtilega en annasama tíma sem nú er hafinn á sauðfjárbúum landsins🐑
... Sjá meiraSjá minna

👨‍🌾 Sögustund um Svein búfræðing fór fram í gær þar sem Bjarni Guðmundsson fór yfir ævi og störf hans. Í lokin röltu gestir með Bjarna út í Frúargarð þar sem lagður var blómvöndur við styttu Sveins. Við þökkum þeim sem komu og líka öllum þeim sem hafa sótt viðburðina hjá okkur í vetur!🙏🏻
Nú er maí handan við hornið og byrjar sumaropnun þann 15anda🗓️ Svo í sumar er ýmislegt á teikniborðinu en meir um það síðar! Við sendum svo sauðfjárbændum sérstakar kveðjur í þeim skemmtilega en annasama tíma sem nú er hafinn á sauðfjárbúum landsins🐑Image attachmentImage attachment+1Image attachment

0 CommentsSkrá aths

🦕Fyrir nokkrum dögum benti glöggur safngestur okkur á skort á risaeðlum í safninu. Við tókum á okkur rögg og höfðum samband við aðila innan Þjóðminjasafn Íslands sem komu okkur í samband við erlent safn sem aðstoðuðu okkur í að finna beinagrind til sýnis. Í gærkvöldi fengum við senda hauskúpu og hluta af beinagrind af tegundinni camarasaurus. Gripur sem vóg allt að 20 tonn og lifði á jurtum og plöntum.🦕
Nú í morgun og fram eftir hádegi vinna starfsmenn safnsins og sérfræðingur við að setja hana upp í hlöðunni og er gestum boðið að koma og bera gripinn augun eftir kl. 14 í dag. Frítt verður inn á safnið við tilefnið og enski fornleifafræðingurinn Alex Saurton frá safninu Museum of fossils sem fylgdi beinunum til landsins frá Bretlandi segir okkur meira frá þessari merku gjöf!
... Sjá meiraSjá minna

🦕Fyrir nokkrum dögum benti glöggur safngestur okkur á skort á risaeðlum í safninu. Við tókum á okkur rögg og höfðum samband við aðila innan Þjóðminjasafn Íslands sem komu okkur í samband við erlent safn sem aðstoðuðu okkur í að finna beinagrind til sýnis. Í gærkvöldi fengum við senda hauskúpu og hluta af beinagrind af tegundinni camarasaurus. Gripur sem vóg allt að 20 tonn og lifði á jurtum og plöntum.🦕
Nú í morgun og fram eftir hádegi vinna starfsmenn safnsins og sérfræðingur við að setja hana upp í hlöðunni og er gestum boðið að koma og bera gripinn augun eftir kl. 14 í dag. Frítt verður inn á safnið við tilefnið og enski fornleifafræðingurinn Alex Saurton frá safninu Museum of fossils sem fylgdi beinunum til landsins frá Bretlandi segir okkur meira frá þessari merku gjöf!Image attachment

3 CommentsSkrá aths

Ég hefði viljað sjá Tyranosaurus rex

Páll Ivan Frá Eiðum

En spennandi, við mætum 😁

3 mánuðir síðan

🐑Veðrið verður til friðs annað kvöld samkvæmt spámönnum! Um erindið Ærnar renna eina slóð segir Bjarni:
"Spjallið verður byggt á myndum og frásögnum margra heimildarmanna í hópi sauðfjárbænda og áhugafólks um sauðfé, sem það hefur sent mér."

Heitt verður á könnunni sjáumst í Skemmunni kl. 20:00☕️ Hlökkum til að sjá ykkur☺️

Mynd frá Bjarna fengin úr hópnum Sauðfjárbændur.
... Sjá meiraSjá minna

🐑Veðrið verður til friðs annað kvöld samkvæmt spámönnum! Um erindið Ærnar renna eina slóð segir Bjarni:
Spjallið verður byggt á myndum og frásögnum margra heimildarmanna í hópi sauðfjárbænda og áhugafólks um sauðfé, sem það hefur sent mér.Heitt verður á könnunni sjáumst í Skemmunni kl. 20:00☕️ Hlökkum til að sjá ykkur☺️Mynd frá Bjarna fengin úr hópnum Sauðfjárbændur.

0 CommentsSkrá aths

Við mælum með þessu námskeiði hjá okkar vinum í Ullarselinu núna um helgina! Fátt betra í núvitundinni en að hlusta á rokkana og læra að spinna í band🧶 ... Sjá meiraSjá minna

Við mælum með þessu námskeiði hjá okkar vinum í Ullarselinu núna um helgina! Fátt betra í núvitundinni en að hlusta á rokkana og læra að spinna í band🧶

0 CommentsSkrá aths

Við þökkum Haraldi fyrir fróðlegt erindi um Sögu iðnaðar í Hvalfirði síðasta miðvikudag.🏭 Margt afar áhugavert sem átti sér stað í uppbyggingu bæði á Skaganum og Hvalfirði. Einnig þökkum við þeim sem komu þrátt fyrir slæmt færi og snjóhríð þetta kvöld!☃️🌨️🪏
Næsti viðburður verður svo 12 mars, málþing um rannsóknir Sigurðar Más, meira um það í viðburði safnsins hér á samfélagsmiðlum☺️
... Sjá meiraSjá minna

Við þökkum Haraldi fyrir fróðlegt erindi um Sögu iðnaðar í Hvalfirði síðasta miðvikudag.🏭 Margt afar áhugavert sem átti sér stað í uppbyggingu bæði á Skaganum og Hvalfirði. Einnig þökkum við þeim sem komu þrátt fyrir slæmt færi og snjóhríð þetta kvöld!☃️🌨️🪏
Næsti viðburður verður svo 12 mars, málþing um rannsóknir Sigurðar Más, meira um það í viðburði safnsins hér á samfélagsmiðlum☺️

0 CommentsSkrá aths

❗️ Í næstu viku hefjum við viðburðadagskrá ársins 2026 hér á Landbúnaðarsafninu ❗️
Fyrstur til að stíga á stokk er Haraldur Benediktsson sem ætlar að fjalla um Sögu iðnaðar í Hvalfirði. Um erindið segir Haraldur:

Núna er hálf öld - 50 ár - frá því að framkvæmdir við iðnaðarsvæðið á Grundartanga hófust. En aðdragandi að þeirri uppbyggingu er allt frá 1932. Farið verður yfir aðdraganda og sögu að því að Grundartangi varð að einu mesta atvinnusvæði landsins. Nú eru tímamót og um leið og gott er að þekkja söguna er líka horft til nánustu framtíðar.

Við sjáumst í Skemmunni miðvikudaginn 25. febrúar kl. 20. Frekari upplýsingar er að finna hér í viðburðinum: www.facebook.com/events/926584303165474 👈
... Sjá meiraSjá minna

❗️ Í næstu viku hefjum við viðburðadagskrá ársins 2026 hér á Landbúnaðarsafninu ❗️
Fyrstur til að stíga á stokk er Haraldur Benediktsson sem ætlar að fjalla um Sögu iðnaðar í Hvalfirði. Um erindið segir Haraldur:Núna er hálf öld - 50 ár - frá því að framkvæmdir við iðnaðarsvæðið á Grundartanga hófust.  En aðdragandi að þeirri uppbyggingu er allt frá 1932.  Farið verður yfir aðdraganda og sögu að því að Grundartangi varð að einu mesta atvinnusvæði landsins.  Nú eru tímamót og um leið og gott er að þekkja söguna er líka horft til nánustu framtíðar.Við sjáumst í Skemmunni miðvikudaginn 25. febrúar kl. 20. Frekari upplýsingar er að finna hér í viðburðinum: https://www.facebook.com/events/926584303165474 👈

0 CommentsSkrá aths

Þökuskurður og þökusala er þónokkur bissness. Vaxandi þörf er fyrir góðan svörð í fermetravís bæði til viðhalds eldri grasflötum sem og myndun nýrra, hvort heldur er til yndisauka eða íþróttaiðkunar.

Góðar þökur eru því mikilvæg landbúnaðarafurð. Iðja þessi varð til á tuttugustu öld í kjölfar vaxandi umhverfishyggju í þéttbýli sem var að komast á legg svo og tilkomu vandaðra íþróttavalla.

Gamla aðferðin, að rista torf með undirristuspaða, dugði lengi vel við túnræktina; hefur sjálfsagt einnig verið brúkuð í fyrstu við öflun torfs til grasflatagerðar.

En einhverjir hófu að smíða sérstök verkfæri til þökuskurðar og þá þökuskurðar á sléttu landi - og þökusölu (?). Þannig var þökuplógur reyndur af Verkfæranefnd ríkisins á Hvanneyri árið 1954. Með honum ristu tveir menn 9 fermetra á mínútu skv. mælingu. . . Sá náði ekki útbreiðslu.

Heimildarmaður vék sér að skrifara í dag og sagði frá hliðstæðri hönnun þökuskurðartækis sem brúkað var í nágrenni Reykjavíkur. Tækið varð undirstaða að rekstri er óx upp í allnokkuð fyrirtæki sem nýtti sér vaxandi Reykjavíkurmarkað fyrir túnþökur. . .

Skrifara datt því í hug að athuga hvort lesendur hefðu heyrt um fleiri INNLEND tæki - t.d. þökuplóga - sem smíðuð hefðu verið til þess að mæta þörf nútímans fyrir fallegar grasflatir?

. . . INNLEND vegna þess að brátt kom að því að þökuskurðarvélar af erlendum uppruna leystu vandann. Þær munu nú alls ráðandi í þessum geira íslensku gróðurþjónustunnar.

Gaman væri að sjá/heyra ef einhver lesenda þessara lína "kveikir" á viðfangsefninu.

ÁFRAM ÍSLAND🙂
... Sjá meiraSjá minna

1 CommentSkrá aths

Elvar Örn Birgisson

.
Árið 2026 er (eins og flest önnur ár. . . ) tímamótaár. Þá má segja að FORDSON-hjóladráttarvélin hafi hafið þá öld hjóladráttarvéla sem enn stendur.

"Fáir njóta þó eldanna sem fyrstir kveikja þá" sagði Davíð. Nallarnir (IHC 10-20) náðu fljótt sviðinu og Fordson féll í dálítinn skugga . . .

Það var sumarið 1926 sem Fordson-hjóladráttarvélin var kynnt við jarðvinnslu í Sogamýri í Reykjavík. Nauthreppingar við Djúp keyptu þá eina og nokkru fyrr hafði Theodór Johnson í Hjarðarholti í Dölum keypt slíka vél til jarðyrkju þar.

Sennilega kom FORDSONINN, sem er í safninu hér á Hve hingað sem gjöf Páls Stefánssonar frá Þverá til Halldórs skólastjóra líka þetta sumar til starfa (heimildum um það ber þó ekki alveg saman). Aldarafmæli Fordson er því í uppsiglingu í ár.

Ef allt fer eftir áætlun dagsins ætla ég að koma áleiðis dálítilli Fordson-sögu sem bókarkafla þegar líður á árið. Áður á þó ýmislegt eftir að gerast🤔😊 . . . "stei tjún´d" eins og þar stendur. . .

En þið sem eigið Fordson af eldri kalíbernum - skreytið hann með dálitlum afmælis- og heiðursfána því vel má kalla árið 2026 ár Fordson-anna.
... Sjá meiraSjá minna

.
Árið 2026 er (eins og flest önnur ár. . . ) tímamótaár. Þá má segja að FORDSON-hjóladráttarvélin hafi hafið þá öld hjóladráttarvéla sem enn stendur.Fáir njóta þó eldanna sem fyrstir kveikja þá sagði Davíð. Nallarnir (IHC 10-20) náðu fljótt sviðinu og Fordson féll í dálítinn skugga . . .Það var sumarið 1926 sem Fordson-hjóladráttarvélin var kynnt við jarðvinnslu í Sogamýri í Reykjavík. Nauthreppingar við Djúp keyptu þá eina og nokkru fyrr hafði Theodór Johnson í Hjarðarholti í Dölum keypt slíka vél til jarðyrkju þar.Sennilega kom FORDSONINN, sem er í safninu hér á Hve hingað sem gjöf Páls Stefánssonar frá Þverá til Halldórs skólastjóra líka þetta sumar til starfa (heimildum um það ber þó ekki alveg saman). Aldarafmæli Fordson er því í uppsiglingu í ár.Ef allt fer eftir áætlun dagsins ætla ég að koma áleiðis dálítilli Fordson-sögu sem bókarkafla þegar líður á árið. Áður á þó ýmislegt eftir að gerast🤔😊 . . . stei tjún´d eins og þar stendur. . .En þið sem eigið Fordson af eldri kalíbernum - skreytið hann með dálitlum afmælis- og heiðursfána því vel má kalla árið 2026 ár Fordson-anna.Image attachmentImage attachment

0 CommentsSkrá aths

Ertu í jólagjafahugleiðingum? Þarft ekki að leita lengra! Hér í safninu fást bollar með myndum af þúfnabananum og taupokar🎁 Opið á laugardaginn á milli kl. 13-17 en velkomið að hafa samband til að nálgast djásnin fyrir jól hjá okkur utan opnunartíma☺️🎄 ... Sjá meiraSjá minna

Ertu í jólagjafahugleiðingum? Þarft ekki að leita lengra! Hér í safninu fást bollar með myndum af þúfnabananum og taupokar🎁 Opið á laugardaginn á milli kl. 13-17 en velkomið að hafa samband til að nálgast djásnin fyrir jól hjá okkur utan opnunartíma☺️🎄Image attachment

0 CommentsSkrá aths

Fyrir um viku síðan opnaði Logi Einarsson menningarmálaráðherra nýjan Sarp, gagnagrunn íslenskra safna um safnkost þeirra. Óhætt er að segja að nýja síðan er gríðarlega vel heppnuð þar sem til dæmis er endurbætt leitarvél sem auðveldar aðgengi almennings að upplýsingum um fjölbreytt aðföng þar inni. Hæstvirtur ráðherra var til dæmis ekki lengi að finna ljósmyndir af ættingjum sínum við opnunina!
Hvetjum við fólk til að skoða nýja vefinn sem er stútfullur af merkilegum heimildum og er einnig afar “huggulegur ásýndum” ef svo má að orði komast!👏🏻

👉🏻 www.sarpur.is
... Sjá meiraSjá minna

Fyrir um viku síðan opnaði Logi Einarsson menningarmálaráðherra  nýjan Sarp, gagnagrunn íslenskra safna um safnkost þeirra. Óhætt er að segja að nýja síðan er gríðarlega vel heppnuð þar sem til dæmis er endurbætt leitarvél sem auðveldar aðgengi almennings að upplýsingum um fjölbreytt aðföng þar inni. Hæstvirtur ráðherra var til dæmis ekki lengi að finna ljósmyndir af ættingjum sínum við opnunina!
Hvetjum við fólk til að skoða nýja vefinn sem er stútfullur af merkilegum heimildum og er einnig afar “huggulegur ásýndum” ef svo má að orði komast!👏🏻👉🏻 www.sarpur.is

0 CommentsSkrá aths

Við viljum vekja athygli á skemmtilegu jóladagatali FÍSOS. Þar fáum við að kynnast 24 starfsmönnum mismunandi safna og jólahefðum næstu vikurnar. Glugginn í dag er nú kunnuglegur! 🎄 ... Sjá meiraSjá minna

0 CommentsSkrá aths

Það þurfa ekki allir safnsverðir gripir að vera stórir. Einn af traustustu stuðningsmönnum Landbúnaðarsafns, hann Sigurjón Valdimarsson á Glitstöðum, færði safninu tóbaksdós, hvar í voru allmörg lambamerki, frá fyrstu tíðum málm-merkja. Handgerð að sjálfsögðu, mjög haganlega eins og myndir sýna, af tengdaföður hans Eiríki Þorsteinssyni áður bónda á Glitstöðum.

Langur vegur er frá þessum merkjum til þeirrar tækni sem beitt er í dag, hvað þá þeirrar sem nýtt verður á morgun . . .

Ýmsar gerðir lambamerkja hafa þekkst í áranna rás. Já, og hvenær hófu menn annars að brúka slík merki?

Sjálfsagt er að halda dæmum um helstu gerðir lambamerkja til haga. Landbúnaðarsafn þiggur þau en líka má benda á Sauðfjársetur á Ströndum sem verðugan viðtakanda.
... Sjá meiraSjá minna

Það þurfa ekki allir safnsverðir gripir að vera stórir. Einn af traustustu stuðningsmönnum Landbúnaðarsafns, hann Sigurjón Valdimarsson á Glitstöðum, færði safninu tóbaksdós, hvar í voru allmörg lambamerki, frá fyrstu tíðum málm-merkja. Handgerð að sjálfsögðu, mjög haganlega eins og myndir sýna, af tengdaföður hans Eiríki Þorsteinssyni áður bónda á Glitstöðum.Langur vegur er frá þessum merkjum til þeirrar tækni sem beitt er í dag, hvað þá þeirrar sem nýtt verður á morgun . . .Ýmsar gerðir lambamerkja hafa þekkst í áranna rás. Já, og hvenær hófu menn annars að brúka slík merki?Sjálfsagt er að halda dæmum um helstu gerðir lambamerkja til haga. Landbúnaðarsafn þiggur þau en líka má benda á Sauðfjársetur á Ströndum sem verðugan viðtakanda.Image attachment

5 CommentsSkrá aths

Mamma bjó til öll álmerkin hér á bæ. Þau voru samfelldur rennigur úr áli, slegið númer, sameiginlegt fyrir kind og lömb og bæjarmerki. REnningurinn var svo formaður þannig að lengri endanum var rennt í gegnum gat í eyra og klemmdur saman við styttri endann. Þetta var að ég held góður búnaður, smá handavinna við að gera og ganga frá, en sjaldan sem merki týndist úr eyra

Álmerkin eru þau fyrstu sem ég man eftir. Finnst að við höfum mjög fljótlega farið að nota þau, við fórum að búa fyrir alvöru 1958.

Það var mikið ábyrgðahlutverk að fá að höggva númerin í álstrimlana. En mig minnir að merkin frá Þór hafi haft þann ókost að þau áttu til með að springa út úr gatinu á sléttu plötunni ?

View more comments

Það var aldeilis gaman í gær hjá okkur á “lokaviðburði” safnsins í ár. Dagrún og Jón sögðu okkur frá gömlum jólafólum og margir nældu sér í bækur😊 Við mælum með bókinni og geta áhugasamir fengið eintak frá þeim á síðunni Gömlu íslensku jólafólin 🎁

Nú svo er jólamarkaðurinn næsta laugardag og hlökkum til að sjá ykkur þar!🎄🎄
... Sjá meiraSjá minna

Það var aldeilis gaman í gær hjá okkur á “lokaviðburði” safnsins í ár. Dagrún og Jón sögðu okkur frá gömlum jólafólum og margir nældu sér í bækur😊 Við mælum með bókinni og geta áhugasamir fengið eintak frá þeim á síðunni Gömlu íslensku jólafólin 🎁Nú svo er jólamarkaðurinn næsta laugardag og hlökkum til að sjá ykkur þar!🎄🎄Image attachmentImage attachment+2Image attachment

0 CommentsSkrá aths

Á þessum tíma árs herja þjóðþekktir ræningjar á íslenska bændur og gera sér að góðu afurðir eða búfénað þeirra. Betur þekktir sem JÓLASVEINARNIR! Við þjófstörtum jólagleðinni á Hvanneyri með því að fá til okkar feðgin sem ætla að segja okkur frá fleiri fólum tengdum hinum alræmdu sveinkum.

Jón Jónsson og Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingar á Ströndum rifja upp næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin. Flestir þekkja gamlar og ljótar sögur um Grýlu sem var hryllileg mannæta og jólasveinana sem forðum voru til vandræða hvar sem þeir komu. Sumir í fjölskyldunni eru samt að mestu gleymdir eins og fyrri eiginmenn Grýlu og jólasveinar eins og Lungnaskvettir, Flórsleikir eða Flotnös.

Sagt verður frá óhugnanlegum sögum og þjóðtrú um Grýlu og hennar hyski. Sumt af því hentar varla mjög ungum börnum eða viðkvæmum sálum, en öll sem þora eru hjartanlega velkomin!

Þau feðgin eru einnig að gefa út bók um efnið núna fyrir jólin sem ber yfirskriftina Gömlu íslensku jólafólin: fróðleikur og ljótar sögur, og verða með hana með sér.

📍Hvar? Skemman Hvanneyri.
🗓️Hvenær? Þriðjudaginn 25 nóvember.
🕚Klukkan? 20:00.
☕️Matur? Heitt á könnunni og kruðerí.

Sjá nánar í athugasemdum😊
... Sjá meiraSjá minna

Á þessum tíma árs herja þjóðþekktir ræningjar á íslenska bændur og gera sér að góðu afurðir eða búfénað þeirra. Betur þekktir sem  JÓLASVEINARNIR! Við þjófstörtum jólagleðinni á Hvanneyri með því að fá til okkar feðgin sem ætla að segja okkur frá fleiri fólum tengdum hinum alræmdu sveinkum.Jón Jónsson og Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingar á Ströndum rifja upp næstum því gleymdar sögur um íslensku jólafólin. Flestir þekkja gamlar og ljótar sögur um Grýlu sem var hryllileg mannæta og jólasveinana sem forðum voru til vandræða hvar sem þeir komu. Sumir í fjölskyldunni eru samt að mestu gleymdir eins og fyrri eiginmenn Grýlu og jólasveinar eins og Lungnaskvettir, Flórsleikir eða Flotnös.Sagt verður frá óhugnanlegum sögum og þjóðtrú um Grýlu og hennar hyski. Sumt af því hentar varla mjög ungum börnum eða viðkvæmum sálum, en öll sem þora eru hjartanlega velkomin!Þau feðgin eru einnig að gefa út bók um efnið núna fyrir jólin sem ber yfirskriftina Gömlu íslensku jólafólin: fróðleikur og ljótar sögur, og verða með hana með sér.📍Hvar? Skemman Hvanneyri.
🗓️Hvenær? Þriðjudaginn 25 nóvember.
🕚Klukkan? 20:00.
☕️Matur? Heitt á könnunni og kruðerí.Sjá nánar í athugasemdum😊

"The eagle has landed"!
Í fyrra tóku Fergusonfélagar dráttarvél af gerðinni Austin, 1920, til uppgerðar. Félagarnir hófu ýmsar viðgerðir og töldu sig hafa fundið og fengið og smíðað flest það sem þurfti. EN þegar átti að fara setja gripinn í gang kom babb í bátinn - hann fór ekki í gang. Blokkin var frostsprungin og viðgerð ekki talin fýsileg. Nú voru góð ráð dýr og ekki dóu menn ráðalausir. Haft var samband við menn á Bretlandseyjum en þrátt fyrir ferðir m.a. góðviljugs Englendings til Írland í leitinni miklu að blokk kom allt fyrir ekki. Menn tímdu ekki blokkunum sínum.
Varahlutastjórinn í Austinklúbbnum í Bretlandi benti mönnum á Austinmenn sem staddir eru hinum meginn á hnettinum, Ástralíu. Upp var gefið netfang hjá manni að nafni Alan Williams. Sá JÚ kannaðist við Austin og eflaust eitthvað úr honum. Varahlutir lægju út í garði hjá honum úr gömlum Austin sem hann reif fyrir allnokkru og sæjust ekki lengur fyrir gróðri en minnti að þar hefði legið hreyfill. Nú urðu menn órólegir hvort blokkin í honum hefði líka frostsprungið en hr. Williams ansaði því til að mesta frost sem hefði mælst í Melbourne hefði verið 3 gráður 1869 svo kæmi kannski frost í nokkra klukkutíma á sjö ára fresti.
Hr. Williams gróf upp hreyfilinn, reif hann og pakkaði á pall og kom í flutning til ylhýra Íslands. Blokkinnar beið 17000 km leið ef stysta leið væri valin - það var þó ekki rauninn. Ferðalag pakkans varð eftirfarandi:
3. nóv: Lagði af stað frá Melbourne.
4. nóv: Sydney.
5. nóv: Guangzhou í Kína samdægurs til Bangalore Indlandi, þaðan til Kölnar og um kvöldið til Liege í Belgíu!!!!
6. nóv: Eftir sólarhringspásu fór pakkinn til Keflavíkur og daginn eftir til Hafnarfjarðar.
10. nóv: þar sem á mánudagsmorgni rataði hann á tröppur í Reykjavík og á Blikastaði rétt fyrir hádegið.
Alls tók þetta ferli tvo mánuði, fyrstu tölvupóstar hófust 8 september og 63 póstum seinna var pósturinn "The eagle has landed" sendur 10. nóvember. Það verður mikil gleði þegar Austin fær nýjan hreyfil á næstu vikum og þá verður framhaldssaga! Og hér má sjá þessa forlátu blokk sem ferðaðist yfir jarðkringluna til okkar☺️
Fergusonfélagið
... Sjá meiraSjá minna

The eagle has landed!
Í fyrra tóku Fergusonfélagar dráttarvél af gerðinni Austin, 1920, til uppgerðar. Félagarnir hófu ýmsar viðgerðir og töldu sig hafa fundið og fengið og smíðað flest það sem þurfti. EN þegar átti að fara setja gripinn í gang kom babb í bátinn - hann fór ekki í gang. Blokkin var frostsprungin og viðgerð ekki talin fýsileg. Nú voru góð ráð dýr og ekki dóu menn ráðalausir. Haft var samband við menn á Bretlandseyjum en þrátt fyrir ferðir m.a. góðviljugs Englendings til Írland í leitinni miklu að blokk kom allt fyrir ekki. Menn tímdu ekki blokkunum sínum.
Varahlutastjórinn í Austinklúbbnum í Bretlandi benti mönnum á Austinmenn sem staddir eru hinum meginn á hnettinum, Ástralíu. Upp var gefið netfang hjá manni að nafni Alan Williams. Sá JÚ kannaðist við Austin og eflaust eitthvað úr honum. Varahlutir lægju út í garði hjá honum úr gömlum Austin sem hann reif fyrir allnokkru og sæjust ekki lengur fyrir gróðri en minnti að þar hefði legið hreyfill. Nú urðu menn órólegir hvort blokkin í honum hefði líka frostsprungið en hr. Williams ansaði því til að mesta frost sem hefði mælst í Melbourne hefði verið 3 gráður 1869 svo kæmi kannski frost í nokkra klukkutíma á sjö ára fresti.
Hr. Williams gróf upp hreyfilinn, reif hann og pakkaði á pall og kom í flutning til ylhýra Íslands. Blokkinnar beið 17000 km leið ef stysta leið væri valin - það var þó ekki rauninn. Ferðalag pakkans varð eftirfarandi:
3. nóv: Lagði af stað frá Melbourne.
4. nóv: Sydney.
5. nóv: Guangzhou í Kína samdægurs til Bangalore Indlandi, þaðan til Kölnar og um kvöldið til Liege í Belgíu!!!!
6. nóv: Eftir sólarhringspásu fór pakkinn til Keflavíkur og daginn eftir til Hafnarfjarðar.
10. nóv: þar sem á mánudagsmorgni rataði hann á tröppur í Reykjavík og á Blikastaði rétt fyrir hádegið.
Alls tók þetta ferli tvo mánuði, fyrstu tölvupóstar hófust 8 september og 63 póstum seinna var pósturinn The eagle has landed sendur 10. nóvember. Það verður mikil gleði þegar Austin fær nýjan hreyfil á næstu vikum og þá verður framhaldssaga! Og hér má sjá þessa forlátu blokk sem ferðaðist yfir jarðkringluna til okkar☺️
Fergusonfélagið

5 CommentsSkrá aths

Þetta er mögnuð saga

Frábær samvinna sýnist mér til lukku ogvonandi verður útkoman glæsileg.

My one is all go!

View more comments

Annar viðburður í Barnó - Best Mest Vest! 🐏🐑
Í síðustu viku komu yngsta stig Kleppjárnsreykja og Hvanneyrar ásamt Andabæ að skoða og fræðast um hvernig ull verður að lopa. Viðburður sem okkur hefur lengi langað að láta verða að og var Barnamenningarhátíð tilvalin í að "frumsýna" þessa hugmynd. Jóni Ottesen rúningsmanni og konunum okkar úr Ullarselinu eru færðar hjartans þakkir í að miðla þessu merkilega ferli! James Einari fyrir myndirnar og Heiðari Árna fjármeistara Hvanneyrarbúið fyrir lömbin!
Svo er lokapunkturinn á miðvikudaginn þegar börnin fá að sýna afrakstur vinnu sinnar síðasta mánuðinn! Hvetjum alla til að mæta!🥳
Ullarselið Andabær
... Sjá meiraSjá minna

Annar viðburður í Barnó - Best Mest Vest! 🐏🐑
Í síðustu viku komu yngsta stig Kleppjárnsreykja og Hvanneyrar ásamt Andabæ að skoða og fræðast um hvernig ull verður að lopa. Viðburður sem okkur hefur lengi langað að láta verða að og var Barnamenningarhátíð tilvalin í að frumsýna þessa hugmynd. Jóni Ottesen rúningsmanni og konunum okkar úr Ullarselinu eru færðar hjartans þakkir í að miðla þessu merkilega ferli! James Einari fyrir myndirnar og Heiðari Árna fjármeistara Hvanneyrarbúið fyrir lömbin!
Svo er lokapunkturinn á miðvikudaginn þegar börnin fá að sýna afrakstur vinnu sinnar síðasta mánuðinn! Hvetjum alla til að mæta!🥳
Ullarselið AndabærImage attachmentImage attachment+6Image attachment

4 CommentsSkrá aths

Verkefnið er frábært. Væri nú nógu fróðlegt að vita hvort Reykjavíkurborg væri til í að fá svona kynningu. Það er fleira Ísland en Lækjartorg.

Frábært verkefni❤️❤️

Þessar konur eru ekki að búa til lopa. Þær eru að búa til band. Lopi og band er ekki það sama þó að hvort tveggja sé úr ull.

Síðasta fimmtudag kom yngsta stig Heiðarskóla, Hvanneyrar og Kleppjárnsreykja til okkar í náttúrutúlkun. Krakkarnir unnu verkefni á fjórum stöðvum þar sem þau fengu að kynnast plöntum og fuglum. Þetta var mikið stuð þar sem yfir 80 krakkar kíktu til okkar! Takk fyrir komuna en líka viljum við kærlega þakka þeim Margréti Helgu og Jónínu fyrir aðstoðina 🙏
Barnó - Best Mest Vest
... Sjá meiraSjá minna

Síðasta fimmtudag kom yngsta stig Heiðarskóla, Hvanneyrar og Kleppjárnsreykja til okkar í náttúrutúlkun. Krakkarnir unnu verkefni á fjórum stöðvum þar sem þau fengu að kynnast plöntum og fuglum. Þetta var mikið stuð þar sem yfir 80 krakkar kíktu til okkar! Takk fyrir komuna en líka viljum við kærlega þakka þeim Margréti Helgu og Jónínu fyrir aðstoðina 🙏
Barnó - Best Mest VestImage attachmentImage attachment+5Image attachment

0 CommentsSkrá aths

Fyrsti í Barnamenningarhátíð Vesturlands! Leikskólinn Andabær kom í náttúrutúlkun til okkar í morgun. Krakkarnir skoðuðu uppstoppaða fugla, púsluðu, skrifuðu og gerðu listaverk úr laufblöðum. Við þökkum þeim fyrir komuna og fallegan söng sem við starfsmenn fengum að launum í lokin!☺️
Barnó - Best Mest Vest
... Sjá meiraSjá minna

Fyrsti í Barnamenningarhátíð Vesturlands! Leikskólinn Andabær kom í náttúrutúlkun til okkar í morgun. Krakkarnir skoðuðu uppstoppaða fugla, púsluðu, skrifuðu og gerðu listaverk úr laufblöðum. Við þökkum þeim fyrir komuna og fallegan söng sem við starfsmenn fengum að launum í lokin!☺️
Barnó - Best Mest VestImage attachmentImage attachment+1Image attachment

2 CommentsSkrá aths

Best!!!

Fallegt

Það er líf og fjör hjá okkur í október á Barnamenningarhátíð! Safnabingó er í boði fyrir fjölskylduna á opnunartímum safnsins og eru allir velkomnir til okkar. Frítt inn fyrir 18 ára og yngri 🙂 Í vikunni koma svo Hvanneyrar-og Kleppjárnsreykjadeild, Heiðarskóli og Andabær til okkar í safnfræðslu um náttúrutúlkun🍁🦆
p.s. takið frá daginn 29. október 🧐
... Sjá meiraSjá minna

Það er líf og fjör hjá okkur í október á Barnamenningarhátíð! Safnabingó er í boði fyrir fjölskylduna á opnunartímum safnsins og eru allir velkomnir til okkar. Frítt inn fyrir 18 ára og yngri :) Í vikunni koma svo Hvanneyrar-og Kleppjárnsreykjadeild, Heiðarskóli og Andabær til okkar í safnfræðslu um náttúrutúlkun🍁🦆
p.s. takið frá daginn 29. október 🧐

0 CommentsSkrá aths

📚Farskóli FÍSOS - fagráðstefna safnafólks fór fram í síðustu viku undir yfirskriftinni Áreiðanleiki, trúverðugleiki og sannindi í íslenskum safnaheimi. Starfsmenn Landbúnaðarsafnsins létu sig ekki vanta enda alltaf gaman og fróðlegt að hitta kollega okkar á öðrum söfnum! Nýjar hugmyndir og tengingar urðu til sem við byggjum nú ofan á. Þar til á næsta ári segjum við bara og teljum niður!🥳 ... Sjá meiraSjá minna

📚Farskóli FÍSOS - fagráðstefna safnafólks fór fram í síðustu viku undir yfirskriftinni Áreiðanleiki, trúverðugleiki og sannindi í íslenskum safnaheimi. Starfsmenn Landbúnaðarsafnsins létu sig ekki vanta enda alltaf gaman og fróðlegt að hitta kollega okkar á öðrum söfnum! Nýjar hugmyndir og tengingar urðu til sem við byggjum nú ofan á. Þar til á næsta ári segjum við bara og teljum niður!🥳Image attachmentImage attachment+3Image attachment

0 CommentsSkrá aths

🌞Í dag er síðasti dagur sumaropnunar hjá okkur og opið til kl. 17.
🍂 Því hefst vetraropnun strax á morgun og þar af leiðandi lokað.
❄️ Í vetur verður opið á fimmtudögum-laugardaga á milli kl. 13-17 ásamt því að við tökum á móti hópum eftir óskum.
🙏Við viljum þakka fyrir frábært sumar þar sem fjölmargir sóttu okkur heim. Það var líf og fjör dagsdaglega og síðan voru viðburðir safnsins eins og sýningaropnun Sögu laxveiða, Opnir dagar og Hvanneyrarhátíð verulega vel sóttir og starfsmenn strax farnir að leggja drög að næsta sumari!🥰

Ullarselið
... Sjá meiraSjá minna

🌞Í dag er síðasti dagur sumaropnunar hjá okkur og opið til kl. 17.
🍂 Því hefst vetraropnun strax á morgun og þar af leiðandi lokað.
❄️ Í vetur verður opið á fimmtudögum-laugardaga á milli kl. 13-17 ásamt því að við tökum á móti hópum eftir óskum.
🙏Við viljum þakka fyrir frábært sumar þar sem fjölmargir sóttu okkur heim. Það var líf og fjör dagsdaglega og síðan voru viðburðir safnsins eins og sýningaropnun Sögu laxveiða, Opnir dagar og Hvanneyrarhátíð verulega vel sóttir og starfsmenn strax farnir að leggja drög að næsta sumari!🥰Ullarselið

1 CommentSkrá aths

Very. Nice

Lengi vel hefur Refahúsið svokallaða sem er ein af geymslum (ekki varðveislurými) safnsins verið troðin af gripum og vélum svo ekki var hægt að komast um rýmið á auðveldan hátt. Okkar félagar í Fergusonfélaginu unnu þrekvirki um helgina við að setja smærri gripi í hillur og raða tækjum og vélum svo rýmið nýtist sem best enda löngu troðið eins og staðan var fyrir æðið sem rann á menn. Starfsmenn safnsins náðu í leiðinni að mynda fjöldann allan af munum til að koma niður í skráningu á gripunum á Sarpi sem er gríðarlega nauðsynlegur hluti af okkar starfi. Það var nú svo að á laugardaginn mátti starfsmaður hafa sig alla við að ná að mynda gripina áður en þeir hurfu upp í hillu svo fljótt gengu menn til verks!!!
Verkinu er þó ekki alveg lokið en ljóst að hið erfiðasta er að baki! Ekki náðist mynd af hópnum sem tók þátt en hann samanstóð af verkstjóra, vélstjóra, verkfræðing og vinnumönnum💪🏻

Kærar þakkir hafið þið Fergusonfélagið fyrir enn einn merkis áfangann í starfi safnsins!🙏🏻
... Sjá meiraSjá minna

Lengi vel hefur Refahúsið svokallaða sem er ein af geymslum (ekki varðveislurými) safnsins verið troðin af gripum og vélum svo ekki var hægt að komast um rýmið á auðveldan hátt. Okkar félagar í Fergusonfélaginu unnu þrekvirki um helgina við að setja smærri gripi í hillur og raða tækjum og vélum svo rýmið nýtist sem best enda löngu troðið eins og staðan var fyrir æðið sem rann á menn. Starfsmenn safnsins náðu í leiðinni að mynda fjöldann allan af munum til að koma niður í skráningu á gripunum á Sarpi sem er gríðarlega nauðsynlegur hluti af okkar starfi. Það var nú svo að á laugardaginn mátti starfsmaður hafa sig alla við að ná að mynda gripina áður en þeir hurfu upp í hillu svo fljótt gengu menn til verks!!!
Verkinu er þó ekki alveg lokið en ljóst að hið erfiðasta er að baki! Ekki náðist mynd af hópnum sem tók þátt en hann samanstóð af verkstjóra, vélstjóra, verkfræðing og vinnumönnum💪🏻Kærar þakkir hafið þið Fergusonfélagið fyrir enn einn merkis áfangann í starfi safnsins!🙏🏻Image attachmentImage attachment+6Image attachment

3 CommentsSkrá aths

Þetta er meiriháttar. Þvílíkur hópur 🙏

Þetta er orðið að sýningarsal.

Þetta er almennilegt. Fá yfirsýn og þetta er eina leiðin og sú rétta.

Það var líf og fjör á föstudaginn með komu tveggja hópa á safnið! Við tökum á móti stórum sem smáum hópum, frekari upplýsingar má finna hér á heimasíðu okkar: landbunadarsafn.is/heim/fyrir-gesti/#bokaleidsogn 😌

English
For group booking and information click the following link: landbunadarsafn.is/heim/english/
... Sjá meiraSjá minna

Það var líf og fjör á föstudaginn með komu tveggja hópa á safnið! Við tökum á móti stórum sem smáum hópum, frekari upplýsingar má finna hér á heimasíðu okkar: https://landbunadarsafn.is/heim/fyrir-gesti/#bokaleidsogn 😌English
For group booking and information click the following link: https://landbunadarsafn.is/heim/english/

0 CommentsSkrá aths

Sumarið er sko ekki búið! 🌞🌸
Það verður opið hjá okkur alla daga út september frá kl. 11:00 - 17:00 - verið öll hjartanlega velkomin til okkar á Hvanneyri! 🚜🌿
... Sjá meiraSjá minna

Sumarið er sko ekki búið! 🌞🌸
Það verður opið hjá okkur alla daga út september frá kl. 11:00 - 17:00 - verið öll hjartanlega velkomin til okkar á Hvanneyri! 🚜🌿

2 CommentsSkrá aths

Ullarselið ☺️

Vann á Hvanneyri í sex ár og 2 sumur til viðbótar. Í mörgum störfum. M.a. í Halldórsfjósi í tvö.

10 mánuðir síðan

Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum að samstarf okkar og Fergusonfélagsins hefur heldur betur verið farsælt síðustu ár og erum við þeim þakklát fyrir áhuga þeirra og elju á safninu.
Það var ekki fyrir svo löngu að kviknaði hugmynd að svona þjarkar þyrftu að fá almennileg verkfæri hér á Hvanneyri. Svo fór að Sindri færði Fergusonfélaginu að gjöf veglegan verkfæraskáp til afnota. Við færum Sindra ehf þakkir fyrir höfðinglega gjöf til félaga okkar!🙏
www.sindri.is
... Sjá meiraSjá minna

Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum að samstarf okkar og Fergusonfélagsins hefur heldur betur verið farsælt síðustu ár og erum við þeim þakklát fyrir áhuga þeirra og elju á safninu.
Það var ekki fyrir svo löngu að kviknaði hugmynd að svona þjarkar þyrftu að fá almennileg verkfæri hér á Hvanneyri. Svo fór að Sindri færði Fergusonfélaginu að gjöf veglegan verkfæraskáp til afnota. Við færum Sindra ehf þakkir fyrir höfðinglega gjöf til félaga okkar!🙏
www.sindri.is

1 CommentSkrá aths

Þetta eru miklir meistarar, Albert, Þór og Steindi. Albert og Steindi eru eiginlega staðarhaldarar að Blikastöðum, þar sem félagið hefur aðstöðu margt vandamálið hefur verið leyst þar, enda líta þeir félagar aldrei á neitt sem vandamál, heldur sem verkefni.

10 mánuðir síðan

🧶Á Hvanneyrarhátíð var til sýnis þetta æðislega handverk sem safnið fékk að láni. Um það segir:
Megum við kynna Magnfreð Mús bónda frá Músholti í Músasveit sunnan Músár.
Það er nóg að gera hjá kappanum í heyskap svo hann tekur sér vart pásu nema kannski fyrir smá ostbita sem hann er með með sér þarna í nestisboxinu!
Fyrirmyndin að dráttarvélinni er Massey Ferguson 595.

Hönnuður og handverkskona: Anna Málfríður Jónsdóttir
Eigandi: Jóna Guðný Magnúsdóttir
... Sjá meiraSjá minna

🧶Á Hvanneyrarhátíð var til sýnis þetta æðislega handverk sem safnið fékk að láni. Um það segir:
Megum við kynna Magnfreð Mús bónda frá Músholti í Músasveit sunnan Músár.
Það er nóg að gera hjá kappanum í heyskap svo hann tekur sér vart pásu nema kannski fyrir smá ostbita sem hann er með með sér þarna í nestisboxinu!
Fyrirmyndin að dráttarvélinni er Massey Ferguson 595.Hönnuður og handverkskona: Anna Málfríður Jónsdóttir
Eigandi: Jóna Guðný Magnúsdóttir

0 CommentsSkrá aths

10 mánuðir síðan

Hvanneyrarhátíð 2025💫☀️ #VisitIceland🇮🇸 #landbúnaðarsafn #museum #AgriculturalMuseum #hvanneyri #borgarbyggð ... Sjá meiraSjá minna

0 CommentsSkrá aths

10 mánuðir síðan

🙏Nærri vika liðin frá vel heppnaðri Hvanneyrarhátíð. Rúmlega tvö þúsund manns sóttu staðinn heim í bongóblíðu. Landbúnaðarsafnið er stolt af helginni og þakkar þeim sem heimsóttu okkur og þeim sem gerðu þennan dag eins frábæran og raunin var. Þar er ekki á neinn hallað þó Fergusonfélagar séu sérstaklega nefndir í því tilliti. Takk fyrir frábæra hátíð og við hlökkum til þeirrar næstu 🥳

Við viljum ljúka þessari færslu á orðum Bjarna Guðmundssonar um Hvanneyrarhátíð:

. . . upplifði Hvanneyrarhátíð í einmuna veðurblíðu gærdagsins. Hátíðin dró að sér mikinn fjölda góðra gesta sem undu glaðir og slakir við aðdráttaratriði af mörgu slagi, ekki síst það að hitta mann og annan. Hátíðin hefur haldið sínu yfirbragði frá upphafi þessa forms að vera mannamót óformlegheita þar sem Landbúnaðarsafnið (áður Búvélasafn) er grunnurinn, sem spunnið hefur verið í kringum af vaxandi fjölda ýmissa tengdra aðila. Ekki síst má þar nefna Fergusonfélagið og öfluga liðsmenn þess sem lagt hafa safninu lið með stórvirkum og raunar einstökum hætti. Ég vona að ég móðgi engan þótt ég nefni þá sérstaklega - svo mikið og þakkarvert er framlag þeirra til þeirrar menningarvarðveislu, -fræðslu og -afþreyingar sem Landbúnaðarsafn hefur að hlutverki.
... Sjá meiraSjá minna

🙏Nærri vika liðin frá vel heppnaðri Hvanneyrarhátíð. Rúmlega tvö þúsund manns sóttu staðinn heim í bongóblíðu. Landbúnaðarsafnið er stolt af helginni og þakkar þeim sem heimsóttu okkur og þeim sem gerðu þennan dag eins frábæran og raunin var. Þar er ekki á neinn hallað þó Fergusonfélagar séu sérstaklega nefndir í því tilliti. Takk fyrir frábæra hátíð og við hlökkum til þeirrar næstu 🥳Við viljum ljúka þessari færslu á orðum Bjarna Guðmundssonar um Hvanneyrarhátíð:. . . upplifði Hvanneyrarhátíð í einmuna veðurblíðu gærdagsins. Hátíðin dró að sér mikinn fjölda góðra gesta sem undu glaðir og slakir við aðdráttaratriði af mörgu slagi, ekki síst það að hitta mann og annan. Hátíðin hefur haldið sínu yfirbragði frá upphafi þessa forms að vera mannamót óformlegheita þar sem Landbúnaðarsafnið (áður Búvélasafn) er grunnurinn, sem spunnið hefur verið í kringum af vaxandi fjölda ýmissa tengdra aðila. Ekki síst má þar nefna Fergusonfélagið og öfluga liðsmenn þess sem lagt hafa safninu lið með stórvirkum og raunar einstökum hætti. Ég vona að ég móðgi engan þótt ég nefni þá sérstaklega - svo mikið og þakkarvert er framlag þeirra til þeirrar menningarvarðveislu, -fræðslu og -afþreyingar sem Landbúnaðarsafn hefur að hlutverki.Image attachmentImage attachment+Image attachment

4 CommentsSkrá aths

Til hamingju með uppskeru og árangur. Upp er starfið sprottið fyrir elju alúð og allra sem lagt hafa hönd/hendur á plóg. Kemst vonandi næsta sumar.

Aldeilis frábær dagur🤩

Glæsilegur dagur

10 mánuðir síðan

☀️Brakandi blíða og þurrkur! Hvanneyrarhátíð hefst núna klukkan 13:30. Handverks-og matarmarkaður verður í hlöðunni okkar, leiðsögn um sýninguna Sögu laxveiða, safnabingó fyrir krakkana, Fergusonfélagar og fleiri sýna heyskap með gamla laginu auk þess að frítt er inn á safnið. Þetta og fleira á Hvanneyrarhátíð sjáumst á eftir! 🎉 ... Sjá meiraSjá minna

☀️Brakandi blíða og þurrkur! Hvanneyrarhátíð hefst núna klukkan 13:30. Handverks-og matarmarkaður verður í hlöðunni okkar, leiðsögn um sýninguna Sögu laxveiða, safnabingó fyrir krakkana, Fergusonfélagar og fleiri sýna heyskap með gamla laginu auk þess að frítt er inn á safnið. Þetta og fleira á Hvanneyrarhátíð sjáumst á eftir! 🎉

0 CommentsSkrá aths

10 mánuðir síðan

Núna styttist í Hvanneyrarhátíð sem verður um næstu helgi. Fjölbreytt dagskrá í boði fyrir alla aldurshópa.
Verið velkomin á Hvanneyri á laugardaginn - og hvernig væri að taka gömlu dráttarvélina með?Verið velkomin á Hvanneyrarhátíð 8.-9. ágúst 🥳
🥨 Matar- og handverksmarkaður
☕ Kaffisala kvenfélagsins
🚐 Matarvagn
🚜 Fergusonfélagið, traktorafimi og heyskapur með gamla laginu
🚃 Kerruakstur
🐑 Ullarselið opið
🎼 Tónlist og brekkusöngur
📸 Ljósmyndari býður myndtöku
🍡 Kandífloss og andlitsmálning
⛳️ Frisbígolfmót
💦 Tónleikar í Hreppslaug
...
Sjáumst á Hvanneyri🌱
... Sjá meiraSjá minna

Núna styttist í Hvanneyrarhátíð sem verður um næstu helgi. Fjölbreytt dagskrá í boði fyrir alla aldurshópa.
Verið velkomin á Hvanneyri á laugardaginn - og hvernig væri að taka gömlu dráttarvélina með?

1 CommentSkrá aths

My. Home pages

10 mánuðir síðan

Núna styttist í Hvanneyrarhátíð, sem verður um næstu helgi. Það verður ýmislegt í boði fyrir alla aldurshópa. Við hvetjum fólk til að mæta á Hvanneyri á laugardaginn - og hvernig væri að taka gömlu dráttarvélina með?Verið velkomin á Hvanneyrarhátíð 8.-9. ágúst 🥳
🥨 Matar- og handverksmarkaður
☕ Kaffisala kvenfélagsins
🚐 Matarvagn
🚜 Fergusonfélagið, traktorafimi og heyskapur með gamla laginu
🚃 Kerruakstur
🐑 Ullarselið opið
🎼 Tónlist og brekkusöngur
📸 Ljósmyndari býður myndtöku
🍡 Kandífloss og andlitsmálning
⛳️ Frisbígolfmót
💦 Tónleikar í Hreppslaug
...
Sjáumst á Hvanneyri🌱
... Sjá meiraSjá minna

Núna styttist í Hvanneyrarhátíð, sem verður um næstu helgi. Það verður ýmislegt í boði fyrir alla aldurshópa. Við hvetjum fólk til að mæta á Hvanneyri á laugardaginn - og hvernig væri að taka gömlu dráttarvélina með?

1 CommentSkrá aths

My home pagez

11 mánuðir síðan

Í dag mættu nokkrir Fergusonfélagar og dyttuðu að vélum safnsins. Það var greinilega eitthvað sem þurfti að gera við hér .... 🛠🪛🔩 Aukastig til þeirra sem þekkja vélina sem þarna fékk aðhlynningu 😊 ... Sjá meiraSjá minna

Í dag mættu nokkrir Fergusonfélagar og dyttuðu að vélum safnsins. Það var greinilega eitthvað sem þurfti að gera við hér .... 🛠🪛🔩 Aukastig til þeirra sem þekkja vélina sem þarna fékk aðhlynningu 😊

2 CommentsSkrá aths

Þetta er tvímælalaust hanomag. Með ámoksturstækjum.

My home pages

11 mánuðir síðan

Pssst… engin gosmóða inn á safni! Sjáumst 😉 ... Sjá meiraSjá minna

Pssst… engin gosmóða inn á safni! Sjáumst 😉

0 CommentsSkrá aths

11 mánuðir síðan

Fergusondagurinn er byrjaður 🥳 ... Sjá meiraSjá minna

3 CommentsSkrá aths

Wow enjoyed dancing Sir and maam

❤️

Wow

11 mánuðir síðan

Núna á laugardaginn (12. júlí) er Fergusondagur hjá okkur🥳 #fergusontractor #landbúnaðarsafn #westiceland #VisitIceland🇮🇸 ... Sjá meiraSjá minna

3 CommentsSkrá aths

Very nice music

Very nice song

❤️

11 mánuðir síðan

Það verður Fergusondagur hjá okkur á Hvanneyri laugardaginn 12. júlí - verið hjartanlega velkomin🥳🌿 ... Sjá meiraSjá minna

Það verður Fergusondagur hjá okkur á Hvanneyri laugardaginn 12. júlí - verið hjartanlega velkomin🥳🌿

4 CommentsSkrá aths

Sjá meira um viðburðinn hér:fb.me/e/4ObWPPzwt

Frábært að skoða vélarnar i dag í blíðunni og fa sér vöfflukaffi á eftir Takk fyrir mig

Og tónleikar á barnum um kvöldið.

11 mánuðir síðan

Hver elskar ekki “fyrir og eftir”? Hér má sjá hvernig framkvæmdum vatt fram í uppsetningu sýningar. Gríðarlega skemmtilegt ferli 🤩 Takk þið sem komuð að þessu með okkur❤️ #museum #landbúnaðarsafn #sagalaxveida #agriculturalmuseum #construction #exhibition #makingof #visiticeland🇮🇸 #westiceland ... Sjá meiraSjá minna

3 CommentsSkrá aths

My. Home pages

So beautiful

❤️

12 mánuðir síðan

Vá🙏🏻
Við hjá Landbúnaðarsafninu viljum þakka fyrir frábærar móttökur á Sögu laxveiða í Borgarfirði. Um 100 manns komu á sýningaropnunina sem fram fór síðasta föstudag. Takk kærlega fyrir að taka þátt í gleðinni með okkur🥳 Þið sem lögðu hönd á plóg takk fyrir að gera Sögu laxveiða að veruleika❤️
Við hjá safninu erum þakklát og stolt af nýjustu viðbót safnsins sem mun standa til framtíðar í kjallara Halldórsfjóss🎣
Verið velkomin til okkar í Landbúnaðarsafnið þar sem sögu landbúnaðar og landnýtingar eru gerð skil á margvíslegan hátt 🌱🐟🚜🐮🐑
... Sjá meiraSjá minna

Vá🙏🏻
Við hjá Landbúnaðarsafninu viljum þakka fyrir frábærar móttökur á Sögu laxveiða í Borgarfirði. Um 100 manns komu á sýningaropnunina sem fram fór síðasta föstudag. Takk kærlega fyrir að taka þátt í gleðinni með okkur🥳 Þið sem lögðu hönd á plóg takk fyrir að gera Sögu laxveiða að veruleika❤️
Við hjá safninu erum þakklát og stolt af nýjustu viðbót safnsins sem mun standa til framtíðar í kjallara Halldórsfjóss🎣
Verið velkomin til okkar í Landbúnaðarsafnið þar sem sögu landbúnaðar og landnýtingar eru gerð skil á margvíslegan hátt 🌱🐟🚜🐮🐑Image attachmentImage attachment+Image attachment

3 CommentsSkrá aths

Glæsilegt- takk fyrir mig👏

So beautiful

Wow very nice. View

12 mánuðir síðan

Verið öll hjartanlega velkomin í heimsókn til okkar á Hvanneyri! 🥳🌿 ... Sjá meiraSjá minna

Verið öll hjartanlega velkomin í heimsókn til okkar á Hvanneyri! 🥳🌿

1 CommentSkrá aths

Þetta er lítilmannlegt að standa út í miðri á og háfa fiskinn 😉

12 mánuðir síðan

Við þökkum þeim sem komu á fyrsta Fergusondaginn hjá okkur og sérstakar þakkir fá Fergusonfélagar fyrir frábæran dag. Veðrið lék við gesti, vélar og þá félaga. Sjáumst á næsta Fergusondegi sem auglýstur verður von bráðar.🚜 ... Sjá meiraSjá minna

Við þökkum þeim sem komu á fyrsta Fergusondaginn hjá okkur og sérstakar þakkir fá Fergusonfélagar fyrir frábæran dag. Veðrið lék við gesti, vélar og þá félaga. Sjáumst á næsta Fergusondegi sem auglýstur verður von bráðar.🚜Image attachmentImage attachment+6Image attachment

1 CommentSkrá aths

Enjoyed. everyone

Veðrið leikur við okkur á Hvanneyri, Fergusonfélagar búnir að taka út nokkrar vélar og líf á gamla staðnum. Kvenfélagið 19. júní er með kaffisölu í Skemmunni.
Verið velkomin á opin dag safnsins.
... Sjá meiraSjá minna

Veðrið leikur við okkur á Hvanneyri,  Fergusonfélagar búnir að taka út nokkrar vélar og líf á gamla staðnum. Kvenfélagið 19. júní er með kaffisölu í Skemmunni.
Verið velkomin á opin dag safnsins.

1 CommentSkrá aths

So beautiful

1 ár síðan

Þórarinn Blöndal myndlistarmaður er að leggja lokahönd á “þann stóra” fyrir okkur🤩 ... Sjá meiraSjá minna

Þórarinn Blöndal myndlistarmaður er að leggja lokahönd á “þann stóra” fyrir okkur🤩

0 CommentsSkrá aths

📱 Kæru vinir! Við óskum eftir notuðum símum gefins fyrir ákveðið verkefni hér hjá okkur. Símarnir þurfa að hafa óbrotinn skjá og hafa þokkalegasta rafhlöðuendingu (minnst 6 klukkustunda endingu). Ef einhver á slíka síma og vilja koma gripunum í endurnýtingu má senda okkur skilaboð eða skrifa hér undir í athugasemdir.
Mörg karmastig fyrir hvern síma er lofað! 🙏 (Mynd fyrir athygli)
... Sjá meiraSjá minna

📱 Kæru vinir! Við óskum eftir notuðum símum gefins fyrir ákveðið verkefni hér hjá okkur. Símarnir þurfa að hafa óbrotinn skjá og hafa þokkalegasta rafhlöðuendingu (minnst 6 klukkustunda endingu). Ef einhver á slíka síma og vilja koma gripunum í endurnýtingu má senda okkur skilaboð eða skrifa hér undir í athugasemdir.
Mörg karmastig fyrir hvern síma er lofað! 🙏 (Mynd fyrir athygli)

0 CommentsSkrá aths

Þá er myndin öll komin í ljós og auðvitað var hér á ferðinni stangveiðimaður 🎣 Bjarni Guðmundsson teiknaði þessa fyrir okkur ásamt öðrum sem munu líta dagsins ljós á sýningunni Saga laxveiða í Borgarfirði sem opnar eftir rúmar tvær vikur. Við hlökkum til að taka á móti fólki á nýja og glæsilega sýningu. Góða helgi og munið að safnið er opið alla daga milli kl. 11-17. 😊 ... Sjá meiraSjá minna

Þá er myndin öll komin í ljós og auðvitað var hér á ferðinni stangveiðimaður 🎣 Bjarni Guðmundsson teiknaði þessa fyrir okkur ásamt öðrum sem munu líta dagsins ljós á sýningunni Saga laxveiða í Borgarfirði sem opnar eftir rúmar tvær vikur. Við hlökkum til að taka á móti fólki á nýja og glæsilega sýningu. Góða helgi og munið að safnið er opið alla daga milli kl. 11-17. 😊

0 CommentsSkrá aths

Það komast fáir með tærnar þar sem Björn Blöndal hefur hælana í að lýsa upplifun í íslenskri náttúru. Góða veðrið býður nú aldeilis upp á það að njóta náttúrunnar🌞 ... Sjá meiraSjá minna

Það komast fáir með tærnar þar sem Björn Blöndal hefur hælana í að lýsa upplifun í íslenskri náttúru. Góða veðrið býður nú aldeilis upp á það að njóta náttúrunnar🌞

0 CommentsSkrá aths

Það komast fáir með tærnar þar sem Björn Blöndal hefur hælana í að lýsa upplifun í íslenskri náttúru. Góða veðrið býður nú aldeilis upp á það að njóta náttúrunnar🌞 ... Sjá meiraSjá minna

Það komast fáir með tærnar þar sem Björn Blöndal hefur hælana í að lýsa upplifun í íslenskri náttúru. Góða veðrið býður nú aldeilis upp á það að njóta náttúrunnar🌞

0 CommentsSkrá aths

Þessi lýsing Kristleifs Þorsteinssonar (1861-1952) frá Húsafelli á Hvítá í Borgarfirði á enn vel við í dag enda falla nokkrar af gjöfulustu laxveiðiám landsins í hana. Eflaust eru jafnvel nokkrir fiskar á leið upp hana í dag og á næstu vikum en fyrsti laxinn í ár sást í Norðurá í vikunni!🎣 ... Sjá meiraSjá minna

Þessi lýsing Kristleifs Þorsteinssonar (1861-1952) frá Húsafelli á Hvítá í Borgarfirði á enn vel við í dag enda falla nokkrar af gjöfulustu laxveiðiám landsins í hana. Eflaust eru jafnvel nokkrir fiskar á leið upp hana í dag og á næstu vikum en fyrsti laxinn í ár sást í Norðurá í vikunni!🎣

0 CommentsSkrá aths

1 ár síðan

... Sjá meiraSjá minna

1 CommentSkrá aths

Very nice. View

Það er gaman að segja frá því að nú á dögunum gáfu Kaupfélag Borgfirðinga og Flugger litir safninu styrk fyrir uppsetningu sýningarinnar Saga laxveiða í Borgarfirði sem opnar nú í byrjun sumars. Við þökkum þeim kærlega fyrir þetta ómetanlega framlag og hlökkum til að deila afrakstrinum með ykkur!🙏🙏 ... Sjá meiraSjá minna

Það er gaman að segja frá því að nú á dögunum gáfu Kaupfélag Borgfirðinga og Flugger litir safninu styrk fyrir uppsetningu sýningarinnar Saga laxveiða í Borgarfirði sem opnar nú í byrjun sumars. Við þökkum þeim kærlega fyrir þetta ómetanlega framlag og hlökkum til að deila afrakstrinum með ykkur!🙏🙏

0 CommentsSkrá aths

Sjáumst á safnadeginum ☀️ www.instagram.com/p/DJtRGfQOc7T/?igsh=YWRxOWRzZ3F3Ymlz ... Sjá meiraSjá minna

Sjáumst á safnadeginum ☀️                                          https://www.instagram.com/p/DJtRGfQOc7T/?igsh=YWRxOWRzZ3F3Ymlz

0 CommentsSkrá aths

👀Sagan segir að þegar Grímur Thomsen féll af þingi fyrir Borgfirðinga hafi hann kennt "laxakónginum" Andrési Fjeldsted á Hvítárvöllum um ófarir sínar. Þessi staka varð til eftir ósigurinn og á Andrés að hafa sent honum reyktan lax í kjölfarið ásamt svari. ... Sjá meiraSjá minna

👀Sagan segir að þegar Grímur Thomsen féll af þingi fyrir Borgfirðinga hafi hann kennt laxakónginum Andrési Fjeldsted á Hvítárvöllum um ófarir sínar. Þessi staka varð til eftir ósigurinn og á Andrés að hafa sent honum reyktan lax í kjölfarið ásamt svari.

0 CommentsSkrá aths

Sumarið er tíminn☀️Safnið og Ullarselið er nú opið alla daga vikunnar á milli kl. 11-17. Verið velkomin á Hvanneyri það er bongó næstu daga svo það er tilvalið að taka rúnt upp í Borgarfjörð og njóta náttúru og menningu! Á sunnudag er svo frítt inn á safnið í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum🥳 ... Sjá meiraSjá minna

Sumarið er tíminn☀️Safnið og Ullarselið er nú opið alla daga vikunnar á milli kl. 11-17. Verið velkomin á Hvanneyri það er bongó næstu daga svo það er tilvalið að taka rúnt upp í Borgarfjörð og njóta náttúru og menningu! Á sunnudag er svo frítt inn á safnið í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum🥳

0 CommentsSkrá aths

Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum á sunnudaginn er FRÍTT inn á Landbúnaðarsafn Íslands!🥳 Þemað í ár er Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum.
Nánar um þennan dag (tekið af síðu Íslandsdeildar ICOM):

Þann 18. maí er Alþjóðlegi safnadagurinn 2025 haldinn hátíðlegur undir yfirskriftinni Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum.
Í heimi sem tekur örum breytingum gegna söfn lykilhlutverki sem stofnanir sem efla þollyndi, nýsköpun og inngildingu. Þau eru lifandi vettvangur félagslegrar framþróunar og stuðla jafnframt að sjálfbærni á heimsvísu.
Alþjóðlegi safnadagurinn á Íslandi / International Museum Day Iceland
... Sjá meiraSjá minna

Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum á sunnudaginn er FRÍTT inn á Landbúnaðarsafn Íslands!🥳 Þemað í ár er Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum.
Nánar um þennan dag (tekið af síðu Íslandsdeildar ICOM):Þann 18. maí er Alþjóðlegi safnadagurinn 2025 haldinn hátíðlegur undir yfirskriftinni Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum.
Í heimi sem tekur örum breytingum gegna söfn lykilhlutverki sem stofnanir sem efla þollyndi, nýsköpun og inngildingu. Þau eru lifandi vettvangur félagslegrar framþróunar og stuðla jafnframt að sjálfbærni á heimsvísu.
Alþjóðlegi safnadagurinn á Íslandi / International Museum Day Iceland

0 CommentsSkrá aths

Vísa þessi er eftir Ásbjörn (1907-1999) bifreiðasmið úr Borgarnesi. En af hverju ætli myndin sé?🧐 ... Sjá meiraSjá minna

Vísa þessi er eftir Ásbjörn (1907-1999) bifreiðasmið úr Borgarnesi. En af hverju ætli myndin sé?🧐

0 CommentsSkrá aths

1 ár síðan

... Sjá meiraSjá minna

1 CommentSkrá aths

My home pages

Þessa skemmtilegu vísu eða bæn rákumst við á í heimsókn okkar til Sigrúnar Ásu Sturludóttur á Laxfossi fyrir allnokkru. Bænin var á ensku og uppruni óþekktur en væntanlega komið með enskum veiðimönnum sem þar dvöldu þegar það veiðihús var í notkun. Helgi Hálfdanarson sem var einn af helstu þýðendum á Íslandi á 20. öld hefur svo snarað henni yfir á hið ylhýra og er m.a. að finna á Ísmús. Njótið helgarinnar 😊 ... Sjá meiraSjá minna

Þessa skemmtilegu vísu eða bæn rákumst við á í heimsókn okkar til Sigrúnar Ásu Sturludóttur á Laxfossi fyrir allnokkru. Bænin var á ensku og uppruni óþekktur en væntanlega komið með enskum veiðimönnum sem þar dvöldu þegar það veiðihús var í notkun. Helgi Hálfdanarson sem var einn af helstu þýðendum á Íslandi á 20. öld hefur svo snarað henni yfir á hið ylhýra og er m.a. að finna á Ísmús. Njótið helgarinnar 😊

1 CommentSkrá aths

Frábær bæn með einhverju sannleikskorni 😅

☀️Sumardaginn fyrsta mættu galvaskir menn hingað á Hvanneyri í blíðskaparveðri til að flytja safnkost úr kjallara safnsins upp í hlöðu þess. Þeir Fergusonfélagar Albert Baldursson , Kristján Bjartmarsson, Jón Ingimundur Jónsson, Helgi Jónsson, Ragnar Jónasson og Steindór Rafn Theódórsson mættu um morguninn og á þá rann hálfgert æði því verkinu lauk seinni part dagsins sem er nú ekki alveg öllum lagið enda ófáar áskoranir sem þurfti að yfirstíga í þessu verkefni.
🚜Flutningarnir voru mikil áskorun enda um að ræða safnkost sem er ekki álitlegur til slíks verks enda bæði þungur og fyrirferðarmikill. Þar má nefna tvær vélar sem vega um og yfir 2 tonn (halda menn) og í þokkabót á járni en ekki dekkjum og ekki gangfærar. Þeir félagar notuðu mest megnis Massey Ferguson 35x árg. 1963, sem var afar lipur til verksins. Ferguson var notaður til að draga vélarnar en einnig til að setja eldri tæki aftan í eins og heyþyrlu og heykvísl. Allt þetta gekk eins og í sögu með þó vissulega nokkrum áskorununum um að raða, flytja út og inn um hurðir sem jafnvel voru ekki alltaf með okkur í lið. Þarna voru þó atvinnumenn í hagnýtum lausnum á ferð svo þetta blessaðist allt saman afar vel og virkilega skemmtilegur dagur sem einkenndist af jákvæðni og gleði þó stöku gripur hafi fengið viðurnefni sem verður ekki haft hér eftir.
🙏Við viljum koma á framfæri gríðarlegu þakklæti til þeirra félaga (og þeirra sem einnig komu til aðstoðar) enda er þeirra framlag og vinna safninu ómetanlegt og mun samstarfið vonandi halda áfram um ókomin ár. Og líkt og Bjarni Guðmundsson fyrrum safnstjóri lýsti flutningunum að þá var þetta svo sannarlega "dagsverk sem lengi mun minnst"! Fergusonfélagið
Hér er smá minningarbrot frá deginum!
... Sjá meiraSjá minna

1 CommentSkrá aths

Sæll og þreyttur yfirgaf ég Hvanneyri eftir þetta skemtilega dagsverk. Takk öll sem að verkinu komu. Og takk Hvanneyrar valkyrjur að fá okkur í verkið 🙏 Sönn ánægja ❤️

Landbúnaðarsafnið óskar ykkur gleðilegs sumars! Það gekk mikið á í gær hjá okkur fyrsta sumardaginn en meira um það síðar🚜 Þriðja myndbútnum fylgir heilaormurinn Lax, lax, lax og hefur verið full áberandi í kolli safnastarfsmanna síðustu daga!🎶 Góða helgi! ... Sjá meiraSjá minna

Landbúnaðarsafnið óskar ykkur gleðilegs sumars! Það gekk mikið á í gær hjá okkur fyrsta sumardaginn en meira um það síðar🚜 Þriðja myndbútnum fylgir heilaormurinn Lax, lax, lax og hefur verið full áberandi í kolli safnastarfsmanna síðustu daga!🎶 Góða helgi!

0 CommentsSkrá aths

1 ár síðan

🎶 “Vorið kemur heimur hlýnar” á svo sannarlega við síðustu daga ☀️ ... Sjá meiraSjá minna

🎶 “Vorið kemur heimur hlýnar” á svo sannarlega við síðustu daga ☀️

1 CommentSkrá aths

So beautiful wow

🐣Landbúnaðarsafnið óskar ykkur gleðilegra páska, njótið helgarinnar🐣 Við látum einn málshátt fylgja myndagátunni í dag🕵 ... Sjá meiraSjá minna

🐣Landbúnaðarsafnið óskar ykkur gleðilegra páska, njótið helgarinnar🐣 Við látum einn málshátt fylgja myndagátunni í dag🕵

0 CommentsSkrá aths

Opið um páskana hjá okkur🐣 ... Sjá meiraSjá minna

Opið um páskana hjá okkur🐣

0 CommentsSkrá aths

Landbúnaðarsafnið og Ullarselið er opið fimmtudag til laugardag, verið velkomin!🐣 ... Sjá meiraSjá minna

Landbúnaðarsafnið og Ullarselið er opið fimmtudag til laugardag, verið velkomin!🐣

0 CommentsSkrá aths

🕵️ Næstu föstudaga munu birtast brot úr mynd úr smiðju Bjarna Guðmundssonar, ykkur er velkomið að giska! En ljóðið er Bjarna Thorarensen (1786-1841) og á við bæði menn og laxa. Góða helgi! ... Sjá meiraSjá minna

🕵️ Næstu föstudaga munu birtast brot úr mynd úr smiðju Bjarna Guðmundssonar, ykkur er velkomið að giska! En ljóðið er Bjarna Thorarensen (1786-1841) og á við bæði menn og laxa. Góða helgi!

0 CommentsSkrá aths

Þær flugu ófáar sögurnar hjá hestasveinum og ráðskonu í gærkvöldi. Spjallað var um skemmtilega en horfna tíma við ána og farið yfir gamlar ljósmyndir og einhverjir nældu sér í bók þeirra félaga. Virkilega gaman að sjá og heyra!
Við þökkum þeim Arnóri, Einari, Hjördísi og Stefáni kærlega fyrir komuna og þeim sem heimsóttu okkur 🙏
Kjarrá og síðustu hestasveinarnir á Víghól
... Sjá meiraSjá minna

Þær flugu ófáar sögurnar hjá hestasveinum og ráðskonu í gærkvöldi. Spjallað var um skemmtilega en horfna tíma við ána og farið yfir gamlar ljósmyndir og einhverjir nældu sér í bók þeirra félaga. Virkilega gaman að sjá og heyra!
Við þökkum þeim Arnóri, Einari, Hjördísi og Stefáni kærlega fyrir komuna og þeim sem heimsóttu okkur 🙏
Kjarrá og síðustu hestasveinarnir á VíghólImage attachmentImage attachment+3Image attachment

0 CommentsSkrá aths

1 ár síðan

... Sjá meiraSjá minna

1 CommentSkrá aths

So beautiful

📢Hvað og hvenær?
Næstkomandi miðvikudag kl. 20, ætlum við að fá að heyra frásögur af lífi hestasveina við Kjarrá sem aðstoðuðu stangveiðimenn í baráttunni við laxinn. Frítt inn ásamt kaffi og meððí' !
Hvar?🏠
Sjáumst í Skemmunni, Hvanneyri!
Nánar um viðburðinn í eftirfarandi tengli:
www.facebook.com/events/534454332582882
... Sjá meiraSjá minna

📢Hvað og hvenær?
Næstkomandi miðvikudag kl. 20, ætlum við að fá að heyra frásögur af lífi hestasveina við Kjarrá sem aðstoðuðu stangveiðimenn í baráttunni við laxinn. Frítt inn ásamt kaffi og meððí !
Hvar?🏠
Sjáumst í Skemmunni, Hvanneyri!
Nánar um viðburðinn í eftirfarandi tengli:
https://www.facebook.com/events/534454332582882

1 CommentSkrá aths

Very nice riding the horses

Úr bókinni Svanasöngur eftir náttúrubarnið Björn Blöndal🌱 ... Sjá meiraSjá minna

Úr bókinni Svanasöngur eftir náttúrubarnið Björn Blöndal🌱

0 CommentsSkrá aths

Við þökkum Bjarna kærlega fyrir fróðlegt og skemmtilegt erindi í síðustu viku. Ennfremur þökkum við áheyrendum fyrir komuna. Maður er manns gaman svo sannarlega😊 ... Sjá meiraSjá minna

Við þökkum Bjarna kærlega fyrir fróðlegt og skemmtilegt erindi í síðustu viku. Ennfremur þökkum við áheyrendum fyrir komuna. Maður er manns gaman svo sannarlega😊Image attachment

1 CommentSkrá aths

Já meira um kvöldið í frétt Skessuhornsins: skessuhorn.is/2025/03/14/bjarni-heilladi-gesti-i-skemmunni

Gaman að fá þessa heimsókn og takk fyrir komuna😊 ... Sjá meiraSjá minna

Gaman að fá þessa heimsókn og takk fyrir komuna😊Image attachmentImage attachment+6Image attachment

0 CommentsSkrá aths

Þetta ætti enginn að láta fram hjá sér fara. Kíkið á þetta námskeið hjá Ullarselið.🐏 ... Sjá meiraSjá minna

Þetta ætti enginn að láta fram hjá sér fara. Kíkið á þetta námskeið hjá Ullarselið.🐏

0 CommentsSkrá aths

1 ár síðan

Föstudaginn síðasta fór fram úthlutunarboð Safnaráðs við hátíðlega athöfn þar sem Logi Einarsson, menningarráðherra, úthlutaði styrkjum.
Landbúnaðarsafnið fékk þrjá styrki úr aðalúthlutun en áður hafði safnið fengið tvo úr aukaúthlutun💐 Hlökkum til að ráðast í verkefni ársins 2025!
... Sjá meiraSjá minna

Föstudaginn síðasta fór fram úthlutunarboð Safnaráðs við hátíðlega athöfn þar sem Logi Einarsson, menningarráðherra, úthlutaði styrkjum.
Landbúnaðarsafnið fékk þrjá styrki úr aðalúthlutun en áður hafði safnið fengið tvo úr aukaúthlutun💐 Hlökkum til að ráðast í verkefni ársins 2025!

3 CommentsSkrá aths

Hjartanlega til hamingju! 🙂 Hlakka til að fylgjast með þessu 🥰🥳

Til hamingju .

Innilegar hamingjuóskir frábær árangur

Safnið fékk á dögunum styrk frá Uppbyggingasjóð Vesturlands til sýningagerðar Sögu laxveiða í Borgarfirði, svokallaðan lokahnykk á rannsóknarverkefni sem hefur verið í gangi hér á safninu síðustu ár. Viljum við þakka sjóðnum fyrir stuðninginn og hlökkum til að opna nýja sýningu síðar á árinu! ... Sjá meiraSjá minna

Safnið fékk á dögunum styrk frá Uppbyggingasjóð Vesturlands til sýningagerðar Sögu laxveiða í Borgarfirði, svokallaðan lokahnykk á rannsóknarverkefni sem hefur verið í gangi hér á safninu síðustu ár. Viljum við þakka sjóðnum fyrir stuðninginn og hlökkum til að opna nýja sýningu síðar á árinu!

4 CommentsSkrá aths

Frábært

Til hamingju

Nema hvað. Til hamingju.

Hún er mætt ☀️ Nú er tilefni til þess að steikja pönnukökur! ... Sjá meiraSjá minna

Hún er mætt ☀️ Nú er tilefni til þess að steikja pönnukökur!

0 CommentsSkrá aths

Lax, lax, lax og aftur lax!🐟
Hvað leynist í ykkar fórum? Í ár mun sýningin Saga laxveiða í Borgarfirði opna hjá okkur og því leitum við til ykkar fylgjenda hvort ekki leynist gripir eða ljósmyndir sem tengjast laxveiðum á einn eða annan hátt. Hér að neðan eru dæmi en listinn er ekki tæmandi og aldur munanna má vera til dagsins í dag (samtímagripir):

Veiðarfæri: stengur, hjól, flugur, box, laxastingur, net, efni í netaveiðar, háfar o.fl.
Fatnaður: vöðlur, stígvél, jakkar, hattar o.fl.
Ljósmyndir: frá veiðum, lífinu í veiðihúsum, fiskrækt, fiskrannsóknum, veiðiám, veiðimenn, gædar, búnað, frá uppbyggingu og framkvæmda við veiðiár o.s.frv. (tengsl við Borgarfjörð/Borgarbyggð er skilyrði).
Gripir: úr veiðihúsum í Borgarbyggð, skilti veiðistaða í Borgarbyggð, uppstoppaðir laxar, seiði, búnaður notaður til fiskirannsókna/ræktunar o.fl.

Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst: safn@landbunadarsafn.is eða hér á fésbókinni með því að senda skilaboð.
Það ber að taka fram að þótt ykkur finnist munirnir ekki merkilegir eða eiga lítið erindi á safn, getur verið að "framtíðin" muni líta þá sem mikilvægar heimildir um liðna tíð!
Smáa letrið: Safnið kaupir ekki muni og áskilur sér rétt til að neita munum sbr. söfnunarstefnu þess.
... Sjá meiraSjá minna

Lax, lax, lax og aftur lax!🐟
Hvað leynist í ykkar fórum? Í ár mun sýningin Saga laxveiða í Borgarfirði opna hjá okkur og því leitum við til ykkar fylgjenda hvort ekki leynist gripir eða ljósmyndir sem tengjast laxveiðum á einn eða annan hátt. Hér að neðan eru dæmi en listinn er ekki tæmandi og aldur munanna má vera til dagsins í dag (samtímagripir):Veiðarfæri: stengur, hjól, flugur, box, laxastingur, net, efni í netaveiðar, háfar o.fl.
Fatnaður: vöðlur, stígvél, jakkar, hattar o.fl.
Ljósmyndir: frá veiðum, lífinu í veiðihúsum, fiskrækt, fiskrannsóknum, veiðiám, veiðimenn, gædar, búnað, frá uppbyggingu og framkvæmda við veiðiár o.s.frv. (tengsl við Borgarfjörð/Borgarbyggð er skilyrði).
Gripir: úr veiðihúsum í Borgarbyggð, skilti veiðistaða í Borgarbyggð, uppstoppaðir laxar, seiði, búnaður notaður til fiskirannsókna/ræktunar o.fl.Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst: safn@landbunadarsafn.is eða hér á fésbókinni með því að senda skilaboð.
Það ber að taka fram að þótt ykkur finnist munirnir ekki merkilegir eða eiga lítið erindi á safn, getur verið að framtíðin muni líta þá sem mikilvægar heimildir um liðna tíð!
Smáa letrið: Safnið kaupir ekki muni og áskilur sér rétt til að neita munum sbr. söfnunarstefnu þess.

0 CommentsSkrá aths

Hlaða niður fleiri færslum