Fréttir
... að Ford vélasmiðr hafi tekið að smíða plógvagna (tractors) ...
	<description>Það skal viðurkennt að heimsíðungur ræður sér vart þessa dagana vegna ágætrar frammistöðu fót-ballar-félags í nálægu sjávarplássi svo minnir á forna frægð þar í vör. 
En það er fleira af fornri frægð. Fyrir 95 árum var margt að gerast í búnaðarmálum Íslands. Vorið 1917 var heilmikið skrafað og skrifað um möguleika á því að fá til landsins dráttarvélar - traktora.
Í ljósi þess að heimsíðungur er að stympast við þá margbrotnu sögu verður hér getið örkafla úr henni:</description>
Er Þúfnabaninn loks að komast í hús? - Styrkur Menningarráðs Vesturlands
	<description>Menningarráð Vesturlands (www.menningarviti.is ) hefur veitt Landbúnaðarsafni Íslands myndarlegan fjárstyrk. 
Styrkurinn er til þess að laga húsnæði í hinu svokallaða Halldórsfjósi á Hvanneyri fyrir fyrsta áfanga varanlegrar sýningar safnsins. 
Byggingin var reist árið 1928 yfir 80 kýr, gerð eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar húsameistara.</description>
Til kirkju á forntraktorum - Hugmynd til biskups
	<description>Vitanlega er Landbúnaðarsafn virðulegt safn sem tekur hlutvek sitt alvarlega, en í millum leyfir heimsíðungur sér samt að víkja ögn af hinni hefðbundnu braut fræða og fagmennsku.
Í dag sá hann nefnilega frétt í Kvöldpóstinum norska frá Grímstað er gekk út á það að bændur og aðrir hefðu ekið til kirkju á traktorum, m.a. forntraktorum af vel þekktri tegund.</description>
Sláttuvél á Land Rover - hefurðu heyrt um hana?
	<description>Á jólaföstunni 1948 kynnti Hekla hf enska landbúnaðarbifreið, Land Rover, er með tímanum varð hluti íslenskrar sveitamenningar.
Aulýsingapésar þeirrar tíðar greina frá því að fá mætti ýmsar búvélar við bifreiðina, þ.m.t. sláttuvélar. 
Skv. blaðafregnum voru þær þó smíðaðar utan Rover-smiðjanna í Birmingham.</description>
Jeppatíðindi og kappsláttarfréttir
	<description>Í marslok- auglýstum við sem oftar eftir fróðleik í Bændablaðinu. Við spurðum annars vegar um myndir af jeppasláttuvélum og hins vegar hvort einhverjir gætu frætt okkur um síðustu kappslættina.
Bændablaðið er sýnilega mikið lesið því viðbrögðin urðu veruleg, satt að segja. Styðja þau við þá kenningu sem heimsíðungur hefur sem söfnungur: Það er allt til, spurningin er bara hvar það er og hvenær það kemur. Þannig munu blöðin í þá fornfrægu bók, Skáldu, líklega koma einn daginn, þau eru nefnilega til ...</description>
Gagnmerkar dráttarvélar í Gerðubergi - bókaspjall þar
	<description>Gleðilegt sumar!
Næstkomandi miðvikudagskvöld verður heimsíðungur með bókaspjall í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Reykjavík: "Þetta er dynur hins nýja tíma, Þuríður mín" kallast spjallið en titillinn er sóttur norður í Þistilfjörð, nánar tiltekið í Svalbarðshrepp fyrir meira en 80 árum.
Gerðuberg er afar merkilegur staður -  félagsheimili og listamiðstöð á söguríkum stað í höfuðborg okkar. Heimsíðungi þykir afar vænt um að fá að spjalla þar ögn um fornvélar og fornvélabókmenntir, sem er vaxandi bókmenntagrein á heimsvísu.</description>
Ragnhildur Helga ræðir um borgfirsk örnefni
	<description>Landslag væri lítils virði ef það héti ekki neitt - sagði glöggur maður. 
Nafnfræðifélagið heldur fræðslufund laugardaginn 21. apríl nk., kl. 13.15 í stofu 201 í Odda, húsi Háskóla Íslands.
Ragnhildur Helga Jónsdóttir umhverfislandfræðingur heldur fyrirlestur sem hún nefnir Skráning örnefna í Borgarfirði.</description>
Víða fer hann Ferguson ...
	<description>Oft hefur heimsíðungur vitnað til og byggt ritningar sínar hér á síðunni á efni sem velunnarar safnsins hafa borið honum. Svo er einnig nú.
Starfsfélagi ágætur var á reisu niðrí Eþiópíu fyrir fáeinum vikum. Eþíópía er merkilegt land þar sem Haile Selassie var keisari og stórbóndi um langar hríðir. Minnist heimsíðungur helst þess að hafa séð fallegar myndir frá kristniboðinu í Konsó þar niðurfrá - en ekki síður hreifst hann af geitahirðunum keisarans sem hlupu alla af sér á Ólympíuleikum. Var ekki Akibúa þeirra fráastur? Jóhanna á Háafelli hefði þurft að ráða hann í vinnumennsku.
En frá Eþíopíu hafði félagi minn með sér merkilegan bankaseðil og færði okkur:</description>
Gleðilega páska!
	<description>Kominn er laugardagur fyrir páska og mál að senda tryggum lesendum þessarar síðu, og hinum líka, páskakveðju. Páskar eru hátíðin sem á tilefni sitt í sigri lífsins yfir dauðanum. 
Þessa dagana sjáum við raunar allt um kring okkur tákn um hliðstæðuna. Vorið er að brjóta af sér viðjar vetrarins. 
Vissulega er veturinn ekki dauðanum merktur: Náttúran á okkar slóðum liggur í dvala á meðan jarðarkúlan baðar aðra fleti sína í sól og sumaryl.</description>
Ljábakki og skautar
	<description>Við hétum því um áramótin síðustu að nokkuð yrði vikið að orfum og ljáum á þessu ári - enda ríkir nú ár orfs og ljáa. 
Landbúnaðarsafn Íslands á marga velvildarmenn víða um land sem láta sig málefnis safnsins varða með ýmsum hætti. 
Sunnlenskur maður ágætur úr þessum hópi hafði samband við heimsíðung á dögunum og sagði honum dálitla þjóðháttasögu um ljái - og þó fremur ljábakka. 
Hún fer hér á eftir.</description>
Það þokast ...
	<description>Nú eru Borgnesingar komir í úrvalsdeild meisaknattleiksins (basket ball) eftir frækilegan sigur á Skagamönnum, sem eru hins vegar á fullri siglingu í fótbelli (football). Skynsamleg sérhæfing sem skilar árangri.
Við nuddum áfram í Halldórsfjósi sem nú stendur grunnmálað, sjá mynd. Verið er að leggja lokahönd á skipulag rýmis og grunnsýningar safnsins. Áfram verður unnið í takt við tiltæka fjármuni.</description>
Sagnakvöld til heiðurs Gunnari Bjarnasyni
	<description>Fimmtudagskvöldið, 29. mars nk., verður á Hvanneyri efni til sagnakvöldvöku til heiðurs Gunnar Bjarnasyni kennara og ráðunaut (1915-1998). Vakan hefst kl. 20 og verður haldin í Ásgarði - aðalbyggingu Landbúnaðarháskólans. 
Á vökunni munu sagnamenn minnast kynna sinna af Gunnari, sem var einn af litríkustu persónum sinnar tíðar. Um margt markaði hann spor í sögu landbúnaðarins; umdeildur að sönnu, en hugmyndaríkur og oft framsýnni en aðrir.
Tveir merkustu karlakórar í Heimi munu einnig koma fram á sagnakvöldinu og léttar veitingar ekki langt undan. 
Njósn hefur borist af því að allmargir vinir og kunningjar Gunnars muni ætla að sækja sagnakvöldið og því er betra að mæta með fyrra fallinu.</description>
Mannvist - bók sem mælt er með!
	<description>Að þessu sinni ætlar heimsíðungur ekki að skrifa langan texta. Þess þarf ekki.
Tækifærið er notað til þess að vekja athygli á bókinni Mannvist - sýnisbók íslenskra fornleifa sem út kom fyrir síðustu jól. 
Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur er aðalhöfundur bókarinnar. Opna gefur bókina út (www.opna.is ).</description>
Rannsókn á háttum nýtingar borgfirskra flæðiengja
	<description>Landbúnaðarsafn Íslands hefur gefið út rit um nýtingu flæðiengja í neðanverðum Borgarfirði, þar sem sérstaklega eru skoðaðir verkhættir og vinnubrögð við nýtingu þeirra á 20. öld. 
Flæðiengjalöndin við Borgarfjörð voru til skamms tíma mikilvægur hluti búrekstrar margra jarða, ekki aðeins þeirra, sem þau lönd áttu heldur einnig annarra sem þar áttu ítök eða leigðu þar slægjur.</description>
Ferguson-dreifari - Nýmóðins fyrir meira en hálfri öld
	<description>Það er enn spölur til vors en samt eru menn farnir að huga að ávinnslu og áburði. Á dögunum lauk hann Jói Ellerts við að pússa upp áburðardreifara - Ferguson þyrildreifara, sem safninu áskotnaðist sl. haust. 
Með Ferguson-dráttarvélum mátti sem kunnugt er fá fjölbreytt verkfæri, flest á þrítengibeisli vélarinnar,  þ.á.m. dreifara fyrir tilbúinn áburð. Þessi dreifaragerð var kölluð þyrildreifari eftir vinnulagi hennar. 
Hún var bylting í gerð áburðardreifara á sinni tíð. Henni var eiginlega ætlað að líkja eftir vinnu sáðmannsins; náði því þó ekki að sama marki og kastdreifararnir gerðu - dreifararnir með stútnum sérstæða frá Vicon.</description>
22 calibera hestasláttuvélaþjóðfræðiþáttur
	<description>Ekki eru allir hlutir í þessari veröld stórir. Það sannaðist nýlega þegar í hús kom viðbótarfróðleikur um hestasláttuvélar, en eins og minnugir vita vinnur safnið að söfnun fróðleiks um notkun hestasláttuvéla - á grundvelli sérstakrar spurningaskrár, sem finna má hér. 
Fróðleiksmolinn, sem hér verður greint frá, snýst um heyskúffu, sem margir settu á greiðu sláttuvélanna til þess að safna heyinu saman strax við sláttinn og spara þannig umtalverðan rakstur.</description>
Menningarráð styrkir Landbúnaðarsafnið
	<description>Menningarráð Vesturlands afhenti styrki til menningarmála landshlutans við formlega athöfn á Skipaskaga sl. föstudag. 
Menningarráð veitti þá Landbúnaðarsafni myndarlegan styrk til varanlegrar sýningar safnsins sem nú er verið að undirbúa. Styrkurinn kemur safninu afar vel. 
Landbúnaðarsafn þakkar Menningarráði Vesturlands (www.menningarviti.is) kærlega fyrir styrkinn.</description>
Ekkert hefur til hans spurst ...
	<description>Við lýstum eftir upplýsingum á dögunum um grip einn, sjá "fréttina" hér næst á undan. Sama virðist eiga við um hann og höfund Njálu: Óþekktur. 
Enginn hefur gefið sig fram sem við hann kannast eða viðlíka gripi. Af því ráðum við að gripurinn hafi verið næsta sjaldgæfur, ef ekki einstakur.
Við munum samt halda áfram að spyrjast fyrir um gripinn - þó ekki væri af öðru en þekktum þráa okkar.  Við munum m.a. gera það á Atvinnusýningu Rotary-klúbbs Borgarness í Hjálmakletti í Borgarnesi á morgun, kl. 13-17. Þar mun Landbúnaðarsafnið kynna starfsemi sína. 
Sýningin er haldin í tilefni 6tugs afmælis Rotary-klúbbsins á þessu ári.</description>
Þekkir þú svona grip?
	<description>Marglýst er yfir að árið 2012 er ár orfs og ljáa í Landbúnaðarsafni. Því er enn höggvið í sama ljáfarið -  það á eftir að gerast oftar er fram á árið líður.
Ágætar konur, er vinna það þjóðþrifaverk að halda úti Nytjamarkaði í Brákarey í Borgarnesi, bæði til eflingar sjálfbæris í samfélaginu og til útvegunar fjármagns til uppihalds þarfra ungmennaíþrótta á því svæði þar sem Egill Skallagrímsson leið bernskur af rítalínþurfandi unglingaveiki, komu í fyrradag færandi hendi:</description>
Ársskýrsla safnsins 2011 komin á vefinn
	<description>Skýrsla Landbúnaðarsafns Íslands fyrir árið 2011 er komin á vefinn og hana má finna hér. Frjálst er að vitna til hennar aðeins með því þó að geta heimildarinnar.
Unnið er að gerð ársreiknings fyrir árið 2011 en aðalfundur safnsins verður haldinn um komandi sumarmál.
Árið 2012 byrjar ágætlega í safninu. Á annað hundrað gestir litu við í janúar, þar á meðal sveitarstjórn Borgarbyggðar er kom í sérstaka heimsókn þann 31. janúar til þess að kynna sér safnið og málefni þess.</description>